Pútín lentur í Peking Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2026 18:38 Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og Wang Yi, utanríkisráðherra Kína. AP/Vladimir Smirnov, Sputnik Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti í dag í Peking í Kína, þar sem hann mun funda með Xi Jinping, kollega sínum. Fundarhöldin munu standa yfir í tvo daga og ætla forsetarnir, samkvæmt rússneskum stjórnvöldum, að ræða efnahagssamvinnu og sameiginlega hagsmuni ríkjanna. Stutt er síðan Donald Trump Bandaríkjaforseti var í opinberri heimsókn í Kína en talsmaður Pútíns segir það ótengt heimsókn Pútíns.
Heimsókn Trumps til Kína var frestað um skeið vegna stríðsins gegn Íran. Kína er Rússlandi gífurlega mikilvægt bandalagsríki og þá sérstaklega eftir innrás Rússa í Úkraínu og meðfylgjandi refsiaðgerðir Vesturlanda. Viðskipti ríkjanna hafa aukist til muna og spila þau stóra rullu í því að Rússar hafi yfir höfuð getað haldið stríðsrekstrinum í Úkraínu áfram. Útflutningur Rússa til Kína hefur nærri því tvöfaldast frá febrúar 2022. Helst kaupa Kínverjar olíu, jarðgas og kol af Rússum. Þó talið sé að þessar vörur kaupi Kínverjar með töluverðum afslætti áætla eftirlitsaðilar, samkvæmt frétt DW, að frá því innrásin hófst hafi Kínverjar keypt jarðeldsneyti af Rússlandi fyrir um 372 milljarða dala. Á sama tíma hafa Rússar keypt vörur af Kínverjum fyrir um 116 milljarða dala. Það hafa að mestu verið iðnaðaríhlutir, bílar og rafbúnaður. Viðskiptin við Kína hafa einnig reynst Rússum gífurlega mikilvæg þegar kemur að drónaframleiðslu í Rússlandi og hergagnaframleiðslu í heild. Munu líklega tala um nýja gasleiðslu Greinendur telja líklegt að Pútín muni kalla eftir því að ríkisstjórnirnar tvær taki frekari skref í að byggja gasleiðslu milli ríkjanna í gegnum Mongólíu. Slíkt myndi auka tekjur Rússa verulega og bæta orkuöryggi Kínverja. Sérstaklega ef Kínverjar gera innrás í Taívan og aðrar flutningaleiðir verða takmarkaðar. Umrædd gasleiðsla kallast Siberia 2 og hefur lengi staðið til að byggja hana. Framkvæmdin hefur þó tafist verulega. Samkvæmt áætlunum á hún að vera 2.600 kílómetra löng og geta borið fimmtíu milljarða rúmmetra af gasi frá Rússlandi til Kína á ári hverju. Siberia 1 gasleiðslan getur flutt 38 milljarða rúmmetra á ári. Leiðslan yrði byggð af rússneska ríkisfyrirtækinu Gazprom en tafirnar á framkvæmdinni eru að miklu leyti til komnar vegna deilna um verð, eins og fram kemur í frétt Reuters. Kínverjar vilja gasið ódýrara en Rússar segjast tilbúnir til að samþykkja. Lokun Hormússunds gæti haft áhrif á viðræðurnar, þar sem stór hluti jarðgass heimsins fer þar í gegn, við eðlilegar kringumstæður. Ástandið gæti fengið Kínverja til að láta af verðkröfum sínum. Hins vegar er vogarafl Pútíns takmarkað vegna þess hve mikið Rússar eru upp á Kínverja komnir þessa dagana.
Rússland Kína Bensín og olía Jarðefnaeldsneyti Vladimír Pútín Tengdar fréttir Enginn arftaki í augsýn hjá Xi Æðstu embættismenn úr miðstjórn Kommúnistaflokks Kína koma saman í Peking í vikunni, þar sem þeir munu leggja á ráðin um hvernig styrkja megi stöðu ríkisins á næstu árum. Tvær stórar spurningar munu hanga yfir fundarhöldunum, þó enginn muni þora að spyrja þeirra. Þær eru hve lengi Xi Jinping mun leiða ríkið og hver gæti tekið við af honum. 20. október 2025 14:16 Pútín og Xi ræddu ódauðleika í gegnum líffæragjöf Hljóðnemi sem kveikt var á tók upp stutt samtal Vladímírs Pútín Rússlandsforseta og Xi Jinping forseta Kína þar sem þeir ræddu um það að líffæragjöf gæti einn daginn veitt ódauðleika á stærðarinnar hersýningunni sem fór fram í Peking í dag. 3. september 2025 23:19 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Prestur lést þegar róðurkross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Sjá meira
Enginn arftaki í augsýn hjá Xi Æðstu embættismenn úr miðstjórn Kommúnistaflokks Kína koma saman í Peking í vikunni, þar sem þeir munu leggja á ráðin um hvernig styrkja megi stöðu ríkisins á næstu árum. Tvær stórar spurningar munu hanga yfir fundarhöldunum, þó enginn muni þora að spyrja þeirra. Þær eru hve lengi Xi Jinping mun leiða ríkið og hver gæti tekið við af honum. 20. október 2025 14:16
Pútín og Xi ræddu ódauðleika í gegnum líffæragjöf Hljóðnemi sem kveikt var á tók upp stutt samtal Vladímírs Pútín Rússlandsforseta og Xi Jinping forseta Kína þar sem þeir ræddu um það að líffæragjöf gæti einn daginn veitt ódauðleika á stærðarinnar hersýningunni sem fór fram í Peking í dag. 3. september 2025 23:19