Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. maí 2026 10:08 Skoðanakannanir hafa sýnt að meirihluti Breta vill aftur inn í Evrópusambandið. Getty Sérfræðingar segja Evrópusambandið myndu taka Bretum með opnum örmum ef þeir vildu ganga aftur í sambandið en að þeir myndu hins vegar ekki fá jafn hagfelldan samning og þeir hefðu verið á. Tími sérstakra undanþága til handa Bretum væri liðinn.
Meirihluti Breta sér nú sárlega eftir Brexit og vill að Bretland taki upp nánara samband við Evrópusambandið. Sumir vilja ganga alla leið og fara aftur inn en þeirra á meðal er Wes Streeting, fráfarandi heilbrigðisráðherra, sem sækist eftir því að verða næsti formaður Verkamannaflokksins og forsætisráðherra, Streeting hefur kallað eftir afsögn Keir Starmer og sagðist á dögunum myndu freista þess að koma Bretum aftur inn í Evrópusambandið ef hann kæmist til valda. Georg Riekeles, fyrrverandi ráðgjafi starfshóps ESB um Brexit, segist í samtali við Guardian gera ráð fyrir að aðildarríkin myndu taka Bretum opnum örmum. Þeir yrðu hins vegar að sætta sig við aðild á sömu forsendum og allir aðrir. „Evrópusambandið getur unnið með Bretlandi sem veit hvað það vill. Það á hins vegar erfitt með Bretland sem vill njóta kosta aðildar en á sama tíma halda í pólitík aðskilnaðar.“ Bretar nutu nokkurra forréttinda innan Evrópusambandsins á sínum tíma og voru til að mynda hvorki innan myntbandalagsins né Schengen. Sandro Gozi, sem var Evrópuráðherra Ítalíu á árunum 2014 til 2018 og fer nú fyrir sendinefnd Evrópu á í þingmannaráði ESB og Breta (PPA), segir klæðskerasniðnarlausnir tilheyra fortíðinni og að Bretar myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og gerðar væru til annarra umsóknarríkja. Aðrir kostir væru hins vegar einnig uppi á borðum, til dæmis samstarf á grundvelli hins sameiginlega markaðar og aðild að mögulegu öryggisráði Evrópu, sem nú er til umræðu.
Bretland Evrópusambandið Brexit Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Sjá meira