Viðskipti innlent

„Til mikils að slægjast í kjara­baráttu á þeim bænum“

Árni Sæberg skrifar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, og Konráð Guðjónsson, hagfræðingur.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, og Konráð Guðjónsson, hagfræðingur. Vísir

Konráð Guðjónsson hagfræðingur setur yfirstandandi kjarabaráttu flugmanna við Icelandair í samhengi við markaðsvirði félagsins, sem er nú á við virði einnar og hálfrar Airbus-þotu, sem félagið áætlar að taka í notkun.

Gengi hlutabréfa í Icelandair er nú 0,69 krónur á hlut en fyrir daginn í dag hafði það lægst varið í 0,7 krónur. Félagið hefur verið í stökustu vandræðum undanfarið vegna tíðra niðurfellinga og frestana flugferða vegna þess að ekki tekst að manna áhafnir. 

Forstjóri félagsins hefur ýjað að því að ekki takist að manna áhafnir vegna óformlegra verkfallsaðgerða flugmanna félagsins.

Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og ráðgjafi hjá Kontext, gerði gengi félagsins að umræðuefni sínu á samfélagsmiðlinum X í morgun.

„Markaðsvirði Icelandair er núna um ein og hálf Airbus A321XLR og samsvarar launakostnaði félagsins í u.þ.b. hálft ár. Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum,“ segir hann.

Icelandair hefur pantað þónokkrar Airbus A321XLR og áætlar að taka þær í notkun árið 2029.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×