Grænlendingar veiða þorsk frá Íslandi Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar 17. maí 2026 10:02 Allir sem láta sig fiskveiðar varða á Íslandi ættu að kynna sér gang mála í ráðgjöf og veiðum Grænlendinga á þorski, hérna rétt hinu megin við miðlínu Íslands og Grænlands, svæði er nefnist Dohrn bankinn og er nær alfarið Grænlands megin miðlínunnar. Þar eru Grænlendingar að stunda veiðar á þorski og er það varla frásögufærandi nema fyrir tvennt. Samkvæmt opinberri skýrslu „FORVALTNINGSPLAN For torsk i Grønland“ frá grænlenskum stjórnvöldum varðandi nýtingu/veiðistjórnun þorsks á Grænlandsmiðum, er þorskurinn sem veiðist við Austur-Grænland og mestmegnis á Dohrn bankanum, alveg upp við miðlínu Íslands og Grænlands, fullvaxta þorskur er kemur í göngum frá Íslandi, líklega í fæðuleit. Grænlendingar veiða þorsk langt umfram ráðgjöf fiskifræðinga, ólíkt Íslendingum. Grænlensk stjórnvöld velja hins vegar að fara allt aðra leið heldur en Íslensk stjórnvöld þegar kemur að nýtingu þorskstofnsins. Grænlendingar átta sig á því, ólíkt Íslendingum að það er ekki skynsamlegt að vernda helsta rándýr hafsins gagnvart veiði. Grænlenskur sjávarútvegur reiðir sig mjög á veiðar úr rækjustofnum og Grænlendingar eru vel meðvitaðir um að þorskur er stórtækt rándýr gagnvart rækjunni, sbr. frétt frá fish-break.com frá 10. janúar 2026. Samráðs skýrsla Grænlenskra stjórnvalda varðandi ákvörðun hámarksafla þorsk fyrir árið 2026 er fróðleg lesning fyrir íslenska pólitíkusa, sjómenn, útgerðarmenn og fiskverkendur auk allra þeirra sem hafa áhuga á sjávarútvegi. Í þeirri skýrslu kemur fram að ráðgjöf fiskifræðinga er hámarksafli upp á rúm 23.500 tonn við Austur Grænlandi og Dorhn bankanum. Grænlensk stjórnvöld taka hins vegar meðvitaða ákvörðun um að nærri tvöfalda hámarksafla miðað við ráðgjöf fiskfræðinga og leyfa hámarksafla þorsks upp á 40 þúsund tonn, lang stærstum hluta þess afla veiddur við miðlínu Íslands og Grænlands á Dorhn bankanum. Rökin eru þau að þarlend stjórnvöld vilja kanna veiðiþol þessar stórfelldu þorskgangna frá Íslandsmiðum! En róttækari er ákvörðunin á miðunum við Vestur Grænland, en þar er ráðgjöf fiskifræðinga upp á rúm 4.700 tonn en ákvörðun hámarksafla þorsks er 16.000 tonn. Nærri þreföldun á ráðgjöf fiskfræðinga. Grænlendingar ætla ekki að falla í sömu gryfju og Íslendingar, það er að fórna rækjustofnum sínum eða öðrum fiskistofnum líkt og loðnu, til að byggja upp risastóran þorskstofn er skapar ójafnvægi og étur upp aðra fiskistofna í ætisleit. Hafró hefur rekið gjaldþrota stefnu í nýtingu þorskstofnsins í áratugi. Að undirlagi Hafró var tekin meðvituð ákvörðun um það að fórna rækjustofnum við Ísland til að byggja upp risastóran þorskstofn. Það hefur engu skilað í meiri veiði á þorski, lagt rækjuiðnað og rækjuútgerðina í rúst á Íslandi og valdið gríðarlegu ójafnvægi í hafinu umhverfis Ísland. Helsti munurinn á nýtingarstefnu Grænlendinga og Íslendinga er sú að Grænlensk stjórnvöld reyna að reka sjálfbæra nýtingu á þorskstofnum og öðrum fiskistofnum við Grænland, ólíkt Íslendingum. Heimildir: https://naalakkersuisut.gl/-/media/departementer/fiskeri_fangst/forvaltningsplaner/da/0705_forvaltningsplan_torsk2025-2029dk.pdf Cod surge reshapes Greenland’s fisheries economy – Fish Break hringsbrev-vedr-torsk-2026da.pdf Höfundur er sjómaður á smábátum og búsettur í Langanesbyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grænland Langanesbyggð Sjávarútvegur Mest lesið Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun Takk Inga Sæland Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hatur í garð gyðinga Árni Már Jensson skrifar Skoðun Samtal getur bjargað lífi Alma D. Möller skrifar Skoðun Erum við Íslendingar hópheimskir? Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun 200 milljarðar – og við getum gert betur Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leiðin út úr PISA-lægðinni Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæfan sem við tökum ekki eftir Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar
Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun