María nýr stjórnarformaður SVEIT Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. maí 2026 11:58 Á myndinni hér að ofan er María með Óskar eiginmanni sínum og Finni, Klöru og Guðfinni á veitingastaðnum þeirra Finnsson í Kringlunni. María Hjaltadóttir, einn eigenda Finnsson í Kringlunni, hefur verið kjörin nýr formaður stjórnar SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði. Með kjöri hennar tekur við formaður með áratuga reynslu úr íslenskum veitingarekstri, markaðsmálum og þjónustugreinum að því er segir í tilkynningu frá SVEIT.
María starfaði um árabil við sölu- og markaðsmál, meðal annars hjá Álafossi, áður en hún kom að rekstri Argentínu steikhúss ásamt eiginmanni sínum, Óskari Finnssyni matreiðslumeistara. „Þar öðlaðist hún víðtæka reynslu af rekstri, þjónustu, mannauðsmálum og daglegri stjórnun í einum þekktasta veitingastað landsins á sínum tíma. Á síðari árum hefur María gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu Finnsson í Kringlunni, þar sem hún hefur haft yfirumsjón með bókhaldi, markaðsmálum og rekstrarstjórnun ásamt fjölskyldu sinni. Reksturinn hefur vakið athygli fyrir sterka þjónustumenningu og skýra sýn á íslenskan veitingarekstur,“ segir í tilkynningu SVEIT. Einar Bárðarson var ráðinn framkvæmdastjóri samtakanna fyrir tæpu ári síðan og segir hann komu Maríu mikið fagnaðarefni fyrir SVEIT. „Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Maríu bæði í stjórnina og í stöðu formanns. Hún býr yfir mikilli þekkingu bæði hérna heima og erlendis og ég hlakka mikið til samstarfsins við hana,“ segir Einar. María segir að staða íslensks veitingageira hafi sjaldan verið jafn þung og nú. Á síðustu árum hafa rekstrarskilyrði versnað verulega með miklum hækkunum á aðföngum, húsaleigu, launakostnaði og öðrum föstum rekstrarliðum. Samhliða því hafi breytingar í ferðaþjónustu og hægari efnahagsumsvif haft bein áhrif á starfsemi fjölmargra fyrirtækja í greininni. SVEIT sé sterk rödd Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar SVEIT var farið yfir stöðu greinarinnar og þær áskoranir sem blasa við fyrirtækjum á veitingamarkaði. Þar var meðal annars rætt um mikilvægi þess að efla sameiginlega hagsmunagæslu greinarinnar og tryggja að rödd veitingamanna heyrist skýrt í samfélagsumræðunni. María segir mikilvægt að samtök eins og SVEIT haldi áfram að vera sterk og sjálfstæð rödd fyrir íslenska veitingamenn. „Við þurfum að standa saman sem grein. Veitingastaðir eru mikilvægur hluti af íslensku atvinnulífi, menningu og ferðaþjónustu. Það er mikilvægt að rödd okkar heyrist skýrt þegar kemur að rekstrarumhverfi, starfsfólki og framtíð greinarinnar,“ segir María. Ætla að funda með stjórnvöldum Á sama fundi var Arinbjörn Þórarinsson, einn eigenda og framkvæmdastjóri Greifans, kjörinn gjaldkeri stjórnar SVEIT. Ný stjórn hyggst á næstu vikum funda með stjórnvöldum, Samtökum atvinnulífsins og öðrum lykilaðilum til að kynna stöðu veitingageirans og þær áskoranir sem fyrirtæki í greininni standa frammi fyrir. Aðrir stjórnamenn í stjórn Sveit eru Emil Helgi Lárusson eigandi Serrano, Brynjar Guðjónsson einn eigenda Flatey og Arngrímur Fannar Haraldsson einn eigenda Funky Bhangra og varamaður í stjórn er Björn Árnsson eigandi Skúli Craftbar. „Ný stjórn hyggst á næstu vikum funda með stjórnvöldum, Samtökum atvinnulífsins og öðrum lykilaðilum til að kynna stöðu veitingageirans og þær áskoranir sem fyrirtæki í greininni standa frammi fyrir. Samstaða og framtíðarsýn voru leiðarstef fundarins og ljóst að ný stjórn SVEIT ætlar sér að halda áfram öflugri hagsmunabaráttu fyrir íslenskan veitingamarkað,“ segir í tilkynningunni.
Veitingastaðir Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Sjá meira