Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar 15. maí 2026 10:41 Eftir að hafa horft á stjórnmálaumræður oddvitanna í Reykjavík sl. miðvikudagskvöld setti ég menningargleraugun á mig og rýndi í hvað var sagt og hvað stendur í stefnum flokkanna um menningarmál. Það vakti athygli mína að fulltrúar Viðreisnar og Miðflokks sögðu nei við auknum framlögum til menningarmála og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins ákvað að sitja hjá. Orð Bjargar Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, um að Reykjavík væri nú þegar með hæstu framlög sveitarfélaga til menningarmála vöktu sérstaka athygli mína. Sú fullyrðing er í sjálfu sér ekki röng. Reykjavík ver hlutfallslega miklu fé til menningarmála miðað við flest önnur sveitarfélög. En sá samanburður verður líka að skoðast í samhengi við hlutverk borgarinnar. Reykjavík er höfuðborg Íslands. Þar eru stærstu menningarstofnanir landsins, mestur fjöldi sjálfstæðra listamanna og flest fyrirtæki innan skapandi greina. Þar fara líka fram stærstu menningarviðburðirnir og þar er meginþungi þeirrar menningarstarfsemi sem þjónar ekki aðeins borgarbúum heldur landinu öllu og að hluta til líka ferðamönnum og alþjóðlegri ímynd Íslands. Þannig hlýst mikil verðmætasköpun í borginni af menningarstarfsemi og skapandi greinum. Ólíkar hugmyndir um menningu Í menningarfræðum eru uppi ólíkar hugmyndir um hlutverk lista og menningar í samfélaginu. Sumir líta fyrst og fremst á menningu sem atvinnugrein eða tæki til borgarþróunar. Aðrir skilja hana sem samfélagslega innviði sem tengjast lýðræði, velferð og þátttöku fólks í samfélaginu. Enn aðrir leggja áherslu á menningu sem þjóðararf og sjálfsmynd. Oft verða svo til ýmiss konar blöndur af þessum nálgunum, eins og sjá má í stefnum flokkanna. Þótt áherslur flokkanna séu ólíkar má víða finna sameiginlegar hugmyndir um mikilvægi menningarrýma, grasrótarstarfs og aðgengis að menningu. Munurinn liggur fremur í því hvernig flokkarnir skilja hlutverk opinbers stuðnings, menningarinnviða og tengsl menningar við borgarþróun, samfélag og atvinnulíf. Píratar leggja skýra áherslu á menningu sem samfélagslega innviði og á efnisleg skilyrði listsköpunar. Þeir mæla með stóraukinni fjárfestingu í menningu og listum og tala um að fullfjármagna menningarstefnu. Svipaða sýn má finna hjá Sósíalistaflokknum sem leggur áherslu á menningu sem félagslegt réttlætis- og velferðarmál og vill einnig stórauka opinberan stuðning við listir og menningu. Þar er lögð áhersla á aðgengi allra að menningu óháð efnahag og stöðu, auk afkomuöryggis listafólks og eflingu félags- og menningarrýma. Áherslur á menningarrými, aðgengi og starfsumhverfi listafólks eru einnig að finna hjá Vinstrinu, þó með almennari hætti. Sú nálgun byggir á þeirri hugmynd að listsköpun verði ekki til í tómarúmi heldur þurfi efnisleg skilyrði og samfélagslegt öryggi til að þrífast. Samfylkingin leggur áherslu á menningu sem hluta af lifandi hverfum, samfélagsinnviðum og skapandi atvinnulífi. Þar er talað um bætta aðstöðu fyrir tónlistar- og sviðslistafólk, einfaldara regluverk og eflingu samfélags- og menningarrýma í hverfunum. Þannig birtist menning bæði sem hluti af lifandi borgarumhverfi og tæki til að efla félagslegt samhengi og mannlíf í hverfum borgarinnar. Framsókn leggur meiri áherslu á bókasöfn, tónlistarskóla og hverfaviðburði og tengir menningu þannig sterkari böndum við nærumhverfi, fjölskyldulíf og þjónustu í hverfum borgarinnar. Í þeirri nálgun verður menning fyrst og fremst hluti af félagslegri þjónustu og sameiginlegu nærumhverfi fólks. Sjálfstæðisflokkurinn talar um grasrót, skapandi fólk og aðstöðu til menningarstarfs en nálgast málaflokkinn jafnframt út frá hagkvæmni og markvissari styrkjum. Þar er einnig talað um lækkun gjalda vegna viðburðahalds og lögð áhersla á að tryggja aðgengi að húsnæði og rýmum fyrir menningarstarf, bæði í skólum og hverfum borgarinnar. Hugmyndin um Reykjavík sem menningarborg á heimsmælikvarða er þannig tengd bæði borgarlífi, aðdráttarafli og virkri menningarstarfsemi. Viðreisn leggur sömuleiðis áherslu á menningu sem hluta af lífsgæðum, fallegum almenningsrýmum og aðlaðandi borgarupplifun. Þar færist áherslan þó meira yfir á menningu sem þátt í upplifun, ásýnd og ímynd borgarinnar en síður á efnislegt starfsumhverfi listafólks og menningarstarfsemi sem hluta af félagslegum innviðum borgarinnar. Miðflokkurinn sker sig nokkuð úr með áherslu á þjóðlega arfleifð, klassíska menningu og íslenska sjálfsmynd. Í stefnu flokksins má þó einnig finna áherslur á æfinga- og vinnurými listafólks, tónleikastaði og aðgengi að menningarinnviðum. Flokkurinn bendir jafnframt á mikilvægi þess að hlúa að þeim sem skapa með hug og hönd á tímum gervigreindar, sem er áhugaverð og mikilvæg umræða. Á sama tíma vekja áherslur flokksins á að meta eigi list „eftir listrænum verðleikum fremur en hugmyndafræðilegum mælikvörðum“ ákveðnar spurningar um hvort hægt sé að skilja list alveg frá pólitík og hugmyndafræði. Fræðimenn á borð við Pierre Bourdieu hafa bent á að það sem telst „góð list“ eða „hrein fagurfræði“ sé aldrei alveg óháð menningarauði, stétt og samfélagslegu valdi. Þá verður spurningin ekki hvort list sé pólitísk heldur hvaða pólitík telst sjálfsögð eða hlutlaus. Lífæð samfélagsins Viðburðir og afþreying eru hluti af menningu en menning snýst líka um sjálfsmynd, samfélag, gagnrýna hugsun, samveru, þátttöku og það hvernig borg verður lifandi. Hún skapar störf og verðmæti en hefur líka félagslegt og lýðræðislegt hlutverk sem er erfiðara að mæla í excel-skjölum. Sjálfbærni snýst ekki síður um velferð samfélaga og því getur reikningsdæmið grundvallast á mörgum ólíkum breytum. Breytum sem samþætta efnahagsleg, samfélagsleg og staðbundin gildi en eru í leiðinni í samtali við fortíð, samtíð og framtíð og alla þá sem ferðast um þau ólíku rými sem um ræðir. Á endanum snýst menningarumræðan ekki aðeins um fjárhæðir eða einstök verkefni heldur líka um hvort menning sé skilin sem lífæð samfélagsins og grunninnviðir í lifandi borg sem þarf stöðugt að hlúa að. Menningarstefna Reykjavíkurborgar snýst þannig ekki aðeins um fjárframlög, ímynd eða samkeppnishæfni borgarinnar heldur líka um félagsleg, menningarleg og lýðræðisleg gildi hennar. Hún snýst um hvers konar borg við viljum byggja. Höfundur er fagstjóri skapandi greina við Háskólan á Bifröst og formaður Rannsóknaseturs skapandi greina. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun Takk Inga Sæland Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hatur í garð gyðinga Árni Már Jensson skrifar Skoðun Samtal getur bjargað lífi Alma D. Möller skrifar Skoðun Erum við Íslendingar hópheimskir? Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun 200 milljarðar – og við getum gert betur Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leiðin út úr PISA-lægðinni Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæfan sem við tökum ekki eftir Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar
Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun