Fólkið í Hveragerði skiptir öllu máli Þorsteinn Hjartarson skrifar 15. maí 2026 08:12 Framtíð Hveragerðis byggist ekki aðeins á framkvæmdum og fjárfestingum heldur fyrst og fremst á fólkinu sem býr í bænum. S-listinn leggur áherslu á samfélag þar sem þjónusta, tækifæri og lífsgæði ná til allra aldurshópa. Uppbygging bæjarins þarf að byggja á skýrri framtíðarsýn, faglegri stjórnsýslu og samstarfi við íbúa um þróun hans. Í barna- og skólamálum viljum við tryggja öruggt og öflugt skólastarf þar sem velferð barna er alltaf í forgrunni. Leikskólar, grunnskóli og frístundastarf þurfa að þróast í takt við fjölgun íbúa svo fjölskyldur finni fyrir öryggi og góðri þjónustu. Málefni eldri borgara skipta einnig miklu máli. Við viljum styrkja heimaþjónustu og aðra félagslega þjónustu og skapa fleiri tækifæri fyrir eldra fólk til að njóta innihaldsríks lífs. Að þessu verður unnið í miklu samstarfi við Félag eldri borgara og fleiri. S-listinn er eina framboðið með eldri borgara í forystusveitinni sem á möguleika á að komast í bæjarstjórn. Greinarhöfundur hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og óskar því eftir stuðningi eldra fólks í Hveragerði og sem flestra bæjarbúa. S-listinn leggur áherslu á fjölbreytt húsnæði fyrir ólíka hópa samfélagsins. Mikilvægt er að ungt fólk, barnafjölskyldur og eldri íbúar geti fundið húsnæði við sitt hæfi í bænum og að skipulagsmál byggi á fagmennsku, jafnvægi, samtali við íbúana og langtímahugsun. Íþróttir, listir, frístundastarf og græn svæði Íþróttir, listir, frístundastarf, græn svæði og fjöllin í kring eru meðal þess sem gerir bæjarbraginn í Hveragerði sérstakan. Við ætlum að styðja íþróttafélög, menningarstarf, listafólk og þau fjölmörgu félagasamtök sem skapa gleði og líf í samfélaginu okkar. Við leggjum ríka áherslu á það að hlúa að útivist og fjölbreyttu æskulýðsstarfi, þar á meðal skátastarfi, hestamennsku og golfi, sem eiga djúpar rætur í bæjarlífinu. Slík starfsemi styrkir bæjarbraginn, eflir tengsl milli kynslóða og veitir börnum og ungmennum dýrmæt tækifæri til þroska og samveru í heilbrigðu umhverfi. S-listinn ætlar að vinna fyrir allt samfélagið — með ábyrgri uppbyggingu, faglegri stjórnsýslu og skýrri sýn um fallegan og skapandi bæ þar sem gott er að búa. Höfundur er eldri borgari og skipar 2. sæti S-listans í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hveragerði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Sjá meira
Framtíð Hveragerðis byggist ekki aðeins á framkvæmdum og fjárfestingum heldur fyrst og fremst á fólkinu sem býr í bænum. S-listinn leggur áherslu á samfélag þar sem þjónusta, tækifæri og lífsgæði ná til allra aldurshópa. Uppbygging bæjarins þarf að byggja á skýrri framtíðarsýn, faglegri stjórnsýslu og samstarfi við íbúa um þróun hans. Í barna- og skólamálum viljum við tryggja öruggt og öflugt skólastarf þar sem velferð barna er alltaf í forgrunni. Leikskólar, grunnskóli og frístundastarf þurfa að þróast í takt við fjölgun íbúa svo fjölskyldur finni fyrir öryggi og góðri þjónustu. Málefni eldri borgara skipta einnig miklu máli. Við viljum styrkja heimaþjónustu og aðra félagslega þjónustu og skapa fleiri tækifæri fyrir eldra fólk til að njóta innihaldsríks lífs. Að þessu verður unnið í miklu samstarfi við Félag eldri borgara og fleiri. S-listinn er eina framboðið með eldri borgara í forystusveitinni sem á möguleika á að komast í bæjarstjórn. Greinarhöfundur hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og óskar því eftir stuðningi eldra fólks í Hveragerði og sem flestra bæjarbúa. S-listinn leggur áherslu á fjölbreytt húsnæði fyrir ólíka hópa samfélagsins. Mikilvægt er að ungt fólk, barnafjölskyldur og eldri íbúar geti fundið húsnæði við sitt hæfi í bænum og að skipulagsmál byggi á fagmennsku, jafnvægi, samtali við íbúana og langtímahugsun. Íþróttir, listir, frístundastarf og græn svæði Íþróttir, listir, frístundastarf, græn svæði og fjöllin í kring eru meðal þess sem gerir bæjarbraginn í Hveragerði sérstakan. Við ætlum að styðja íþróttafélög, menningarstarf, listafólk og þau fjölmörgu félagasamtök sem skapa gleði og líf í samfélaginu okkar. Við leggjum ríka áherslu á það að hlúa að útivist og fjölbreyttu æskulýðsstarfi, þar á meðal skátastarfi, hestamennsku og golfi, sem eiga djúpar rætur í bæjarlífinu. Slík starfsemi styrkir bæjarbraginn, eflir tengsl milli kynslóða og veitir börnum og ungmennum dýrmæt tækifæri til þroska og samveru í heilbrigðu umhverfi. S-listinn ætlar að vinna fyrir allt samfélagið — með ábyrgri uppbyggingu, faglegri stjórnsýslu og skýrri sýn um fallegan og skapandi bæ þar sem gott er að búa. Höfundur er eldri borgari og skipar 2. sæti S-listans í Hveragerði.
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar