Innlent

Borgar­stjóri kom af fjöllum

Eiður Þór Árnason skrifar
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segist hafa fylgst með hjólabrettaköppum á Ingólfstorgi.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segist hafa fylgst með hjólabrettaköppum á Ingólfstorgi. Vísir/vilhelm

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir fyrirætlanir um að leggja Ingólfstorg undir sölubása og takmarka um leið aðgengi hjólabrettafólks hafa komið sér í opna skjöldu. Hún muni beita sér fyrir því að torgið verði áfram hluti af íslensku hjólabrettasenunni.

„Mér finnst það óhugsandi satt að segja að breyta þessu rótgróna torgi sem við höfum hannað fyrir hjólabrettafimi án samráðs eða auglýsingar. Þar er fallegt mannlíf og fólk hópast bæði til að gera hjólabrettabrellur og svo fólk eins og ég sem kem og horfi á,“ segir Heiða í færslu á Facebook-síðu sinni.

„Ég mun gera mitt til að sjá til þess að torgið verði áfram stór partur í íslensku hjólabretta senunni eins og verið hefur í áratugi.“

Hjólabrettafólk hefur lýst yfir óánægju sinni með þessa breytingu. Borgin tilkynnti á samfélagsmiðlum í gær að sumarmarkaður myndi opna á Ingólfstorgi og Austurstræti 20. maí og yrði þar fram yfir sumarið. Þá var söluaðilum boðið að sækja um aðgang að sölubásum.

„Þetta kom bara eins og þruma úr heiðskíru lofti,“ sagði hjólabrettaiðkandinn og læknaneminn Ingi Hrafn Guðbrandsson í samtali við Vísi fyrr í dag. „Þeir bara hentu þessu upp án þess að tala við neinn.“ Ingólfstorg hafi verið miðstöð hjólabrettamenningar í áratugi og borgin nýbúin að setja upp nýja kanta á torginu sem voru hannaðir með hjólabrettabrellur í huga.

Fréttastofa hefur óskað eftir frekari upplýsingum frá borgarstjóra og verður fréttin uppfærð þegar svör berast. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×