Kársnesið verður þéttbyggðasti reitur landsins Einar Jóhannes Guðnason skrifar 12. maí 2026 14:20 Meirihluti Kópavogsbúa er andvígur Borgarlínunni og þéttingu byggðar. Þetta segir rannsókn sem kynnt var á RÚV. Niðurstaðan kemur eflaust fáum á óvart en í oddvitaumræðum Vísis kom það skýrt fram að einungis Miðflokkurinn ætli að sporna við nýlegri þéttingarstefnu meirihlutans í Kópavogi. Nú kynnir Kópavogsbær með stolti rammahluta aðalskipulags á vestanverðu Kársnesi. Ég hef ekki hitt einn íbúa sem tekur þessu skipulagi fagnandi og staðreyndin er að þegar framkvæmdum lýkur verður þetta þéttbyggðasti reitur Íslands. Hvers vegna er ekki hlustað á vilja íbúa? Fossvogsbrúin mætti andspyrnu upphaflega þegar óljóst var hvort hún yrði fyrir almenna umferð og óttuðust íbúar að henni fylgdi mikil bílaumferð. Þegar tilkynnt var að hún væri einungis fyrir almenningssamgöngur, hjólandi og gangandi kom annar tónn í íbúa. Hann mun líklega breytast aftur nú þegar áformin fyrir vestanvert Kársnes eru ljós. Gert er ráð fyrir 2 bílastæðahúsum í nálægð við brúnna og er nú búið að bæta við um þrjú hundruð íbúðum ofan á núverandi deiliskipulag, þ.m.t. íbúðir án bílastæða. Það má því fastlega gera ráð fyrir því að bílaumferð muni þyngjast verulega á svæðinu og að nemendur við Háskólann í Reykjavík keyri í Kópavog til að leggja í bílastæðahúsi og taka t.d. Hopp-hjól yfir Fossvogsbrúna. Enda á að fjarlægja 300 bílastæði við HR á næstunni. Tækifærin á vestanverðu Kársnesi eru gríðarleg. Kópavogshöfnin og svæðið þar í kring getur orðið að mjög líflegum reit en þessi þéttingarstefna núverandi meirihluta virðist ætla að kasta því á glæ. Við í Miðflokknum í Kópavogi leggjum mikla áherslu á skynsemi í skipulagsmálum. Bílastæði og sólarljós eiga ekki að vera lúxusvara, enda algjör óþarfi að þétta á sama máta og við höfum séð í Reykjavík. Það er einungis eitt í stöðunni fyrir þá íbúa sem hafna slíkri þéttingu. Það er að setja X við M þann 16. maí. Höfundur er oddviti Miðflokksins í Kópavogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Miðflokkurinn Borgarlína Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Meirihluti Kópavogsbúa er andvígur Borgarlínunni og þéttingu byggðar. Þetta segir rannsókn sem kynnt var á RÚV. Niðurstaðan kemur eflaust fáum á óvart en í oddvitaumræðum Vísis kom það skýrt fram að einungis Miðflokkurinn ætli að sporna við nýlegri þéttingarstefnu meirihlutans í Kópavogi. Nú kynnir Kópavogsbær með stolti rammahluta aðalskipulags á vestanverðu Kársnesi. Ég hef ekki hitt einn íbúa sem tekur þessu skipulagi fagnandi og staðreyndin er að þegar framkvæmdum lýkur verður þetta þéttbyggðasti reitur Íslands. Hvers vegna er ekki hlustað á vilja íbúa? Fossvogsbrúin mætti andspyrnu upphaflega þegar óljóst var hvort hún yrði fyrir almenna umferð og óttuðust íbúar að henni fylgdi mikil bílaumferð. Þegar tilkynnt var að hún væri einungis fyrir almenningssamgöngur, hjólandi og gangandi kom annar tónn í íbúa. Hann mun líklega breytast aftur nú þegar áformin fyrir vestanvert Kársnes eru ljós. Gert er ráð fyrir 2 bílastæðahúsum í nálægð við brúnna og er nú búið að bæta við um þrjú hundruð íbúðum ofan á núverandi deiliskipulag, þ.m.t. íbúðir án bílastæða. Það má því fastlega gera ráð fyrir því að bílaumferð muni þyngjast verulega á svæðinu og að nemendur við Háskólann í Reykjavík keyri í Kópavog til að leggja í bílastæðahúsi og taka t.d. Hopp-hjól yfir Fossvogsbrúna. Enda á að fjarlægja 300 bílastæði við HR á næstunni. Tækifærin á vestanverðu Kársnesi eru gríðarleg. Kópavogshöfnin og svæðið þar í kring getur orðið að mjög líflegum reit en þessi þéttingarstefna núverandi meirihluta virðist ætla að kasta því á glæ. Við í Miðflokknum í Kópavogi leggjum mikla áherslu á skynsemi í skipulagsmálum. Bílastæði og sólarljós eiga ekki að vera lúxusvara, enda algjör óþarfi að þétta á sama máta og við höfum séð í Reykjavík. Það er einungis eitt í stöðunni fyrir þá íbúa sem hafna slíkri þéttingu. Það er að setja X við M þann 16. maí. Höfundur er oddviti Miðflokksins í Kópavogi
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar