Flokkar milliliðanna eru dýrir á fóðrum Ögmundur Jónasson skrifar 11. maí 2026 20:32 Helstur flokka milliliðanna er að sjálfsögðu Sjálfstæðisflokkurinn. Hann klifar á mikilvægi samkeppni í opinberum rekstri en í reynd talar hann máli milliliða sem vilja komast að öruggustu fjáruppsprettu sem hugsast getur, almannakostaðri grunnþjónustu. Þessi uppspretta verður aldrei þurrausin. Það þurfa allir vatn, það þurfa allir rafmagn, það þurfa allir menntun fyrir börnin sín, fyrst í leikskóla og síðan á öðrum skólastigum, það þurfa allir heilbrigðisþjónustu, það þurfa allir húsnæði, það þurfa allir sorphirðu. Milliliða-mantra Evrópusambandsins Rétt fyrir síðustu aldamót - það er ekkert mjög langt síðan - gaf fjármálaráðuneytið sem þá laut stjórn Sjálfstæðisflokksins – út bækling þar sem kynnt voru áform um einkavæðingu innviða. Einkavæðingunni átti að fylgja kostnaðarþátttaka notendanna sem nú yrðu neytendur. Þetta var mjög í anda þeirrar stefnu sem var að ryðja sér til rúms innan Evrópusambandsins og átti eftir að verða mantra þar á bæ, það er að markaðsvæða bæri innviði samfélagsins eftir því sem kostur væri, innleiða jafnframt kostnaðarvitund neytenda og efla samtök sem sinntu neytendavernd. Með öðrum orðum, allt á markað en með aðhaldi og undir eftirliti. Á komandi árum þandist allt eftirlitskerfi út. Upp var runninn tími milliliða og eftirlits. Við þekkjum afleiðingar þessarar stefnu í rafmagnsreikningum okkar. Ört vaxandi fjöldi milliliða á raforku-„markaði“ í kjölfar innleiðingar orkupakkanna margfrægu kostaði að sjálfsögðu sitt. Hvernig átti annað að vera. Milliliðakerfið er dýrasta fyrirkomulag sem hugsast getur enda þegar orðið íslenskum notendum/neytendum sýnilegt. Gullgerðarvél markaðshyggjunnar Hér á landi mætti þessi stefna andspyrnu, nú síðast gegn orkupakkastefnu Evrópusambandsins (þar sem grasrót Sjálfstæðisflokksins lét reyndar hressilega frá sér heyra svo hún sé látin njóta sannmælis) en áður hafði andóf almennings einkum beinst gegn einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu. Almennt vildi fólk ekki mismuna í heilbrigðisþjónustu á grundvelli fjárráða. Þá bakkaði Sjálfstæðisflokkurinn. Gott og vel var sagt, höldum áfram að einkavæða en borgum úr sameiginlegum sjóðum fyrir alla!En þar með var gullgerðarvélin fullkomnuð. Framkvæmdin einkavædd en ríki og sveitarfélög skyldu borga brúsann. Þetta er á árunum sem Öldungur hf varð til, fjárfestingafélagið sem stofnsetti Sóltún, öldrunarheimilið sem var í fréttum nýlega eftir að upplýst hafði verið að eigendur hefðu tekið sér í eigin vasa nokkra milljarða í arð af greiðslum sem nær alfarið komu úr ríkissjóði. Þjónandi hægrihyggjan Í ljósi sögunnar er fróðlegt að fylgjast með Sjálfstæðisflokknum í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna. Hann er þegar búinn að setja sig í stellingar, byrjaður að ganga erinda væntanlegra milliliða. Af fullum þunga vegur hann nú að sorphirðu í borginni, hún sé svo dýr. Það sé vegna þess að samkeppni skorti. Alveg eins og sagt var um almannarekna póstþjónustu. Hún væri svo dýr, það vantaði samkeppni. Um þetta hafa samtök milliliða lengi tuðað og Morgunblaðið kynnt undir. Nú er svo komið að heita má að líftóran hafi verið kreist úr Póstinum en Póstdreifing hf er farin að dafna og fitna að því er best verður séð enda auglýsir hún nú án afláts. Hver skyldi eiga hana? Það er Árvakur. Og hver er Árvakur? Það er fyrirtækið sem á og rekur Morgunblaðið. Þarf að segja meira? Sagnfræðilegt innskot Þegar Póstur og Sími var markaðsvæddur snemma á tíunda áratug síðustu aldar veitti hann landsmönnum ódýrari innanlandsþjónustu en þekktist nokkurs staðar á byggðu bóli og það sem meira er hann stóð í stafni um allar tækniframfarir. Ekki nóg með þetta, Landssíminn stóð undir rekstri félagslega rekinnar póstþjónustu um allt land, í hinum dreifðu byggðum sem í þéttbýli og veitti síðan tveimur til þremur milljörðum í ríkissjóð á ári hverju. Það voru miklir peningar sem margir vildu komast yfir. Og það gerðu þeir með aðstoð málaliða sinna á þingi í Sjálfstæðisflokki (Viðreisnar-ESB-klofningsarmurinn var þá enn innanborðs) og hjálparhellna (Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf fundið sér hjálparhellur) úr öðrum flokkum. En til að botna þetta sagnfræðilega innskot þá þarf það að fylgja með að á þessum árum störfuðu norrænar systurstofnanir Pósts og síma náið saman, miðluðu upplýsingum um hvernig mætti nýta tækni og bæta þjónustuna. Þarna var samvinna enn í fyrirrúmi, ekki samkeppnin þar sem hver hélt að sér sínum spilum. Þegar forstjóri Pósts og síma var spurður hvert væri markmiðið með rekstrinum, svaraði hann hiklaust: Að veita landsmönnum góða þjónustu á sem hagkvæmastan hátt. Forstjóri markaðsvædds Landssíma svaraði síðar sömu spurningu þannig: Markmiðið er að veita eigendum hámarksarð! Vinstri atkvæðin eru samfélagsvænni Til þess að losna undan ránsklóm milliliðanna og þjóna þeirra á Alþingi og í sveitarstjórnum er bara eitt að gera. Kjósa á hverjum stað eins langt til vinstri og menn komast. Höfundur er fyrrverandi þingmaður og ráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ögmundur Jónasson Mest lesið Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson Skoðun Halldór 27.06.2026 Halldór Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson Skoðun Skoðun Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Kannski“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir,Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stóru verkefnin leysum við saman Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Varúð má ekki verða að forræðishyggju Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher skrifar Skoðun Upplýst umræða og framsal ríkisvalds Margrét Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólinn er alltaf vandinn Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Geisp Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar