Með eina þriggja mánaða í vinnunni Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 7. maí 2026 16:02 Haukur og Daniela standa vaktina ásamt dóttur sinni Apríl. Vísir/Bjarni Ungt par sem tók nýlega við rekstri veitingastaðarins á Skriðuklaustri býður upp á strangheiðarlegan íslenskan mat og segir móttökurnar hafa verið vonum framar. Þriggja mánaða dóttirin sem mætir með þeim á vaktina unir sér vel.
Á Skriðuklaustri í Fljótsdalshreppi er lítill veitingastaður sem nefnist Klausturkaffi en á síðasta ári fagnaði hann tuttugu og fimm ára afmæli. Elísabet Þorsteinsdóttir hafði frá stofnun þar til um síðustu áramótin rekið staðinn en þá tóku þau Haukur Steinn Fanneyjarson og Daniela Yolanda Melara Lara við honum. Fyrstu gestirnir mættu svo til þeirra í apríl.„Við höfum fengið mjög góðar móttökur og þetta hefur verið mjög skemmtilegt og krefjandi verkefni,“ segir Haukur Steinn. Bæði þekkja svæðið vel en þegar Daniela flutti hingað til lands frá Hondúras á grunnskólaaldri flutti hún austur en Haukur er úr Neskaupstað. Hann flutti svo þaðan suður til að læra kokkinn og var að vinna á La Primavera þegar hann útskrifaðist. Þegar auglýst var eftir fólki til að taka við staðnum fannst þeim það báðum fullkomið tækifæri. „Ég var að klára lögfræðinám og ákvað að taka restina í fjarnám. Við eigum fjölskyldur hérna fyrir austan,“ segir Daniela og bætir við að það sé gott að vera komin aftur heim. Á hádegishlaðborðinu hjá þeim er jafnan margt í boði. „Við bara reynum að vera með strangheiðarlegan mat hérna, eins íslenskan mat og hægt er að hafa. Það hefur komið mér á óvart hvað það hefur fengið góðar móttökur, eins og hjá ferðamönnunum til dæmis. Að fá kjöt í karrí og plokkfisk og svona. Það eru allir rosalega ánægðir með það.“
Múlaþing Börn og uppeldi Veitingastaðir Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Pattra með pæju-padelmót Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Sjá meira