Árleg óvissa um NPA samninga er óboðleg Rúnar Björn Herrera Þorkelsson og Þorbera Fjölnisdóttir skrifa 7. maí 2026 10:33 Notendastýrð persónuleg aðstoð, NPA, er það þjónustuform sveitarfélaga sem gerir fötluðu fólki kleift að vera við stjórnvölinn í eigin lífi. NPA byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf: að fatlað fólk hafi sjálft stjórn á því hver veitir aðstoðina, hvenær hún er veitt og hvernig hún nýtist í daglegu lífi. Þetta er ekki gæska sveitarfélaga eða sértækt tilraunaverkefni. NPA er lögfest þjónustuform sem byggir á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem nú hefur verið lögfestur hér á landi. Sveitarfélög gera NPA-samninga við fatlaða einstaklinga. Í þeim er meðal annars kveðið á um þann tímafjölda sem viðkomandi hefur til að ráða aðstoðarfólk og skipuleggja aðstoð sína. Í dag eru þessir samningar almennt gerðir til eins árs í senn og renna út um hver áramót. Árleg endurnýjun er óhagkvæm og sein í framkvæmd Þetta skapar árlega óvissu sem er bæði óþörf og íþyngjandi. Sveitarfélögin vita hvenær samningarnir renna út. Því mætti ætla að endurnýjun væri undirbúin tímanlega og að nýir samningar lægju fyrir tímalega í lok hvers árs. Raunin er þó oft önnur. Sem dæmi má nefna að nú í lok apríl er enn ekki búið að endurnýja 10 af þeim 70 NPA-samningum sem eru í umsýslu hjá NPA miðstöðinni. Langflestir þeirra eru hjá Hafnarfjarðarbæ, eða átta samningar. Samkvæmt lögum á þjónusta við fatlað fólk að vera samfelld. Greiðslur stöðvast því almennt ekki þótt samningur hafi ekki verið endurnýjaður formlega. En það breytir ekki þeirri staðreynd að þegar samningur rennur út um áramót skapast óöryggi hjá fólki sem byggir allt sitt daglega líf á þessari aðstoð. Fyrir marga NPA-notendur er þetta ekki formsatriði. Þetta snýst um það hvort hægt sé að halda heimili, halda starfsfólki, sækja vinnu eða nám, sinna fjölskyldu og lifa lífi sínu á eigin forsendum. Það er óboðlegt að fólk fari inn í jól og áramót með þá tilfinningu að grunnforsenda sjálfstæðs lífs þess sé komin í laust loft. Núverandi fyrirkomulag veldur óþarfa álagi, kostnaði og tíma Árviss endurnýjun er heldur ekki aðeins álag fyrir NPA-notendur. Hún er líka óhagkvæm stjórnsýsla. Í greiningu HLH ráðgjafar á málaflokki fatlaðs fólks hjá Reykjavíkurborg kemur fram að 15 ráðgjafar hafi komið að gerð 40 NPA-samninga. Þar er einnig bent á að mikið álag skapist í lok hvers árs vegna endurnýjunar NPA- og beingreiðslusamninga. HLH lagði því til að gildistími slíkra samninga yrði tvö ár í stað eins árs og að endurnýjun færi fram bæði um mitt ár og í lok árs. Það er skref í rétta átt. En það leysir ekki grundvallarvandann. Ef stuðningsþörf einstaklings er varanleg, og ekkert hefur breyst sem kallar á nýtt mat, hvers vegna þarf þá að endurgera samninginn ár eftir ár? Starfshópur stjórnvalda um heildarendurskoðun laga um þjónustu við fatlað fólk hefur þegar lagt til skynsamlegri leið. Þar er lagt til að nýr NPA-samningur gildi fyrst í 12 mánuði, en að við endurnýjun verði gerður ótímabundinn samningur með endurskoðunar- og uppsagnarákvæðum. Með öðrum orðum: prófun og þétt eftirfylgd í byrjun, síðan stöðugleiki. Þetta er nákvæmlega sú leið sem NPA miðstöðin telur eðlilega. Fyrsti samningur getur verið til eins árs á meðan reynsla kemst á framkvæmdina. Að því loknu á samningurinn að verða ótímabundinn, með reglulegu stöðumati og skýrum heimildum til breytinga ef aðstæður breytast. Eftirlit hverfur ekki með ótímabundnum samningi Slíkt fyrirkomulag þýðir ekki að eftirlit hverfi. Þvert á móti. Í NPA-samningum eru þegar ákvæði um endurmat, uppsögn og breytingar ef stuðningsþörf eykst, minnkar eða aðrar forsendur breytast. Það þarf ekki að láta samning renna út á hverju ári til að tryggja faglega eftirfylgd. Kópavogsbær hefur nýlega stigið mikilvægt skref í sömu átt hvað varðar eigin reglur um NPA. Þar höfðu reglur verið samþykktar tímabundið til árs í senn meðan beðið var eftir nýrri reglugerð. Nú er lagt til að reglurnar verði samþykktar án gildistíma, enda sé NPA orðið lögfest þjónustuform og ekki lengur tímabundið innleiðingarverkefni. Sama hugsun á að gilda um samningana sjálfa. Þar sem NPA er lögfest þjónustuform og stuðningsþörf fólks er langvarandi, þá á ekki að halda fólki í árlegri biðstöðu. Stjórnsýslan á að styðja við sjálfstætt líf, ekki skapa óvissu um það. NPA miðstöðin hvetur sveitarfélög til að endurskoða verklag sitt. Gerum fyrsta NPA-samning til eins árs, með þéttri eftirfylgd. Ef aðstæður hafa ekki breyst að því loknu, verður samningurinn ótímabundinn með reglubundnu stöðumati, endurskoðunarheimildum og uppsagnarákvæðum. Það væri réttindalega skýrara, mannlegra fyrir NPA-notendur og skynsamlegra fyrir stjórnsýsluna. Fatlað fólk á ekki að þurfa að bíða um hver áramót eftir því hvort sjálfstætt líf þess haldi áfram. Höfundar eru formaður og varaformaður NPA miðstöðvarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Mest lesið Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar