Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Lillý Valgerður Pétursdóttir og Eiður Þór Árnason skrifa 5. maí 2026 19:13 Jón Halldór Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurnesjum. Sýn/Bjarni Portúgölsk kona á sjötugsaldri sem reyndi að smygla fíkniefnum innbyrðis til landsins þurfti að fara í bráðaaðgerð og liggur nú á Landspítalanum. Málum sem snúa að burðardýrum hefur fjölgað verulega að sögn lögreglu. Að jafnaði séu hátt í tuttugu manns í gæsluvarðhaldi vegna slíkra brota á Suðurnesjum. „
Lögreglan á Suðurnesjum hefur verið að fást við þetta í langan tíma og alltaf í samstarfi við löggæslu á Keflavíkurflugvelli þar sem fólk er stöðvað. Það hefur færst verulega í aukana og innflutningur til landsins stóraukist á milli ára,“ sagði Jón Halldór Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurnesjum, í kvöldfréttum Sýnar. Árið 2025 hafi verið metár hjá lögreglunni og tollgæslunni þar sem lagt var hald á sögulega mikið magn af kókaíni og marijúana. „Ef ég fer rétt með þá eru þetta einhvers staðar í kringum 84 kíló sem fóru í gegnum þetta embætti.“ Sautján manns hafi að meðaltali verið í gæsluvarðhaldi á hverjum degi í fyrra í tengslum við smygl. „Það gefur kannski örlitla vísbendingu um hversu umfangsmikið þetta er,“ segir Jón. Yfirstandandi ár sé til samræmis við metárið 2025. Kókaín byrjað að leka úr pakkningum innvortis Jón segir að kona á sjötugsaldri hafi verið stöðvuð af tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli í lok aprílmánaðar sem reyndist vera með ólögleg efni innvortis. „Þegar farið var að hlúa að henni þá var hún illa haldin og flutt á sjúkrahús þar sem fjarlægðar voru 125 pakkningar úr kviðarholi hennar. Á þeim tíma var hún bara mjög hætt komin og henni var haldið sofandi eftir þessa aðgerð í einhverja daga á meðan hún var að ná heilsu að nýju. Þetta hefur gerst áður og ég myndi segja að þetta væri kannski svona árlegur viðburður að þetta gerðist meðal þeirra burðardýra sem koma til landsins,“ bætir Jón við. Konan hafi verið með rúmt kíló af kókaíni innvortis. Í hverju var hún að flytja þetta? „Þetta eru svona bara hefðbundnar pakkningar sem eru svona kannski um tíu grömm hver pakkning, eitthvað svoleiðis. Og ein af þessum pakkningum hafði farið að leka og smitað út frá sér og kallað fram þessi viðbrögð hjá henni.“ Í ljósi þessa hafi læknar talið nauðsynlegt að hún myndi gangast undir aðgerð. „Pakkningin hafði opnast og lífsmörk hennar höfðu farið á verri veg,“ segir Jón Halldór Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurnesjum.
Fíkniefnabrot Lögreglumál Smygl Reykjanesbær Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Sjá meira