Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Árni Sæberg skrifar 5. maí 2026 13:48 Lárus í Landsrétti í tengslum við svokallað Aurum-mál. Vísir/Vilhelm Lögmaður Lárusar Welding mun óska eftir því að niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu í máli hans á hendur íslenska ríkinu verði tekin fyrir í yfirdeild réttarins. Fjórir af sjö dómurum réttarins komust í morgun að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið gegn rétti Lárusar í Stím-málinu svokallaða.
Þetta segir í fréttatilkynningu sem send hefur verið fyrir hönd Lárusar. Vísir fjallaði í dag um niðurstöðu MDE í máli hans. Í tilkynningu segir að málinu reynt á hvort fyrirkomulag við dómkvaðningu sérfróðra meðdómsmanna stæðist kröfur 6. greinar Mannréttindasáttmálans um að dómendur skuli vera sjálfstæðir og óvilhallir. Í máli Lárusar hefði dómsformaður í héraði einfaldlega valið og kvatt til sérfróðan meðdómsmann, veitt honum leiðbeiningar um dómstörfin og síðan ákvarðað honum þóknun við lok starfans. Af hálfu Lárusar hafi því verið haldið fram að slíkt fyrirkomulag gæti ekki staðist þær kröfur sem gerðar eru um sjálfstæði dómstóla. „Þótt niðurstaðan sé ákveðin vonbrigði er hún einkar áhugaverð fyrir þær sakir að meirihluti dómenda, fjórir dómarar af sjö, taldi fyrirkomulagið, sem Lárus hefur fundið að, andstætt sáttmálanum og að brotinn hafi verið á honum réttur við meðferð málsins í héraði. En þar sem einn af þessum fjórum taldi að brotið hafa verið lagfært á æðra dómstigi er niðurstaðan sú að kröfum Lárusar er hafnað. Lárus hefur falið mér að óska eftir því að málinu verði vísað til yfirdeildar MDE. Það mun ég gera næst,“ er haft eftir Óttari Pálssyni, lögmanni Lárusar.
Hrunið Dómsmál Mannréttindadómstóll Evrópu Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Fleiri fréttir „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Sjá meira