Vonarneisti eftir erfiðan vetur Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 5. maí 2026 10:51 Siglingar eru að hefjast á ný til Landeyjarhafnar. Vísir/Vilhelm Stefnt er að því að sigla Herjólfi til Landeyjarhafnar síðdegis en ferjan hefur nánast alfarið siglt til Þorlákshafnar síðan í janúar. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ástandið í vetur hafa reynst mörgum Vestmannaeyingum erfitt og vonar að dagurinn marki formlega opnun á höfninni á þessu ári.
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjarhafnar frá Vestmannaeyjum klukkan sex í dag og svo aftur til Þorlákshafnar rúmlega átta í kvöld. Ólafur Jóhann Borgþórsson framkvæmdastjóri Herjólfs segir svo stefnt að því að sigla aftur til Landeyjarhafnar á morgun. „Það má sannarlega segja að við fögnum þessum degi mjög og það sé hægt að fullyrða að vorið sé loksins að koma til Eyja. Við höfum siglt svona ein á eina ferð á stangli þarna síðan í janúar, en núna hafa verið góðar aðstæður til að dýpka síðan um helgi og spáin lofar góðu. Þannig að nú má segja að dagurinn í dag marki þau tímamót að við séum að opna höfnina og byrjum að sigla svona eina ferð á flóðinu, hvoru flóði fyrir sig, þannig að þetta eru tvær ferðir á dag. Og svo eftir því sem dýpkun vindur fram þá bætum við í. Þannig að við vonumst til þess að þessi dagur í dag marki formlega opnun á höfninni fyrir á þessu ári.“ Ástandið hafi sjaldan verið eins slæmt og í vetur og reynst mörgum erfitt. Vestmannaeyingar hafi upplifað mikla einangrun og forðast í lengstu lög að fara upp á land nema til að sinna brýnustu erindum. „Veturinn hefur bara aldrei verið eins erfiður og síðan Landeyjahöfn var opnuð 2010 og við erum búin að vera meira og minna í Þorlákshafnarsiglingum síðan eftir miðjan janúar og þetta hefur verið mjög erfitt ástand og ekki síst eftir að annar mótor bilaði, sem hefur þýtt að við höfum verið lengur á leiðinni og allt upp í sex tíma hérna á milli og það er ástand sem er ekki neinum bjóðandi.“ Danska Straumlínustofnunin skoðar nú mögulegar úrbætur á höfninni. „Það sem við sjáum sem ljós í myrkri er það að nú er að ljúka rannsóknarvinnu á því hvernig hægt er að bæta aðstæður í Landeyjahöfn. Þær niðurstöður eru kynntar núna, vonandi seinna í þessum mánuði eða byrjun næsta, og við vonumst til þess að menn taki þessari skýrslu og þessari niðurstöðu fagnandi og bretti upp ermar og byrji á því að fjármagna og svo framkvæma þannig að við lendum ekki í þessum hörmungum aftur.“
Vestmannaeyjar Samgöngur Herjólfur Tengdar fréttir Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Samkvæmt dýptarmælingum sem framkvæmdar voru í Landeyjahöfn í gærkvöldi vantar enn töluvert upp á að Herjólfur geti siglt þangað nema við kjöraðstæður á háflóði. 5. maí 2026 09:07 Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Sjá meira
Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Samkvæmt dýptarmælingum sem framkvæmdar voru í Landeyjahöfn í gærkvöldi vantar enn töluvert upp á að Herjólfur geti siglt þangað nema við kjöraðstæður á háflóði. 5. maí 2026 09:07