Erlent

Þrír látnir af völdum hantaveiru um borð í skemmtiferðaskipi

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hantaveiran smitast yfirleitt með nagdýrum en endrum og eins getur hún smitast á milli manna eins  og virðist vera í þessu tilviki. 
Hantaveiran smitast yfirleitt með nagdýrum en endrum og eins getur hún smitast á milli manna eins  og virðist vera í þessu tilviki.  AP Photo/Frank Franklin II

Þrír eru látnir og að minnsta kosti einn er alvarlega veikur eftir að hantaveirusmit kom upp á skemmtiferðaskipi á Atlantshafi.

Skipið Hondius var á leið frá Argentínu þegar smitið kom upp og hjón frá Hollandi eru látin auk eins annars farþega og þá er tæplega sjötugur Breti á gjörgæslu í Jóhannesarborg í Suður-Afríku þangað sem hann var fluttur. 

Hantaveiran er illvígur og smitast yfirleitt í menn í gegnum úrgang úr nagdýrum, en í sjaldgæfum tilfellum getur vírusinn smitast milli manna í gegnum öndunarveg og veldur alvarlegum öndunarfærasýkingum.

Skipið liggur nú við ankeri undan ströndum Grænhöfðaeyja og hefur verið þar síðasta sólarhringinn. Svo virðist sem fólkið hafi ekki fengið leyfi til landgöngu í eyjunum enn sem komið er í það minnsta. Hondius er lúxus-farþegaskip, tiltölulega lítið, sem tekur um 170 farþega og getur ferðast til fjarlægustu staða á jörðinni.

Til stendur að sigla skipinu til Íslands í lok maí og stoppa í Keflavík, Breiðavík, Ísafirði og Flatey en ferðinni lýkur á Akureyri.


Tengdar fréttir

Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits

Þrír ferðalangar á skemmtiferðaskipi eru taldir hafa látist vegna smits af hantaveiru á skipinu. Einn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi en umrætt skemmtiferðaskip mun leggja leið sína til Íslands seinna í mánuðinum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×