Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. maí 2026 18:08 Lögreglan á vettvangi árásarinnar á miðvikudag. AP Essa Suleiman, 45 ára bresk-sómalskur maður, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir að hann stakk tvo menn af gyðingaættum í Lundúnum. Hann er talinn hafa stungið annan mann fyrr um daginn.
Suleiman er ákærður fyrir að hafa stungið Shloime Rand, 34 ára, og Moshe Shine, 76 ára, á miðvikudag með einhvers konar hnífsblaði. Hvorugur þeirra hlaut lífshættulega áverka og hefur Rand verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Shine hlaut stungusár á hálsi. Reuters greinir frá því að Suleimann sé talinn hafa farið inn á heimili annars manns í suðurhluta Lundúnaborgar fyrr um daginn og stungið hann. Hann hefur einnig verið ákærður fyrir tilraun til manndráps í því máli. Eftir fyrstu meintu stunguárásina á Suleimann að hafa ferðast í norðurhluta borgarinnar, í Golders Green-hverfið þar sem fjöldi gyðinga er búsettur. Þar á hann að hafa fyrst hlaupið í átt að Rand, sem var klæddur í hefðbundinn fatnað fyrir rétttrúnaðargyðing, og stungið hann. Shine, sem var klæddur álíka og Rand, stóð síðan við strætóskýli þegar Suleimann á að hafa stungið hann einnig. Lögreglan rannsakar málið sem hryðjuverk. Í kjölfarið var hryðjuverkaógn í Bretlandi færð upp um eitt stig og telst nú mikil auk þess sem talið er að önnur hryðjuverkaárás verði framkvæmd í landinu innan sex mánaða. Er Suleimann fór fyrir dóm staðfesti hann aðeins nafn sitt og fæðingardag en tjáði sig ekki um ákæruna að öðru leyti. Fyrir dóminum kom fram að skráð heimilisfang hans væri á geðheilbrigðisstofnun í suðurhluta Lundúna.
Bretland England Erlend sakamál Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Sjá meira