Innherji

Telja „tíma­spursmál“ hve­nær Icelandair fer í frekari niður­skurð á flug­fram­boði

Hörður Ægisson skrifar
Til að bregðast við snarpri hækkun á verði þotueldsneytis hefur Icelandair nú þegar dregið flugframboð saman um rúmlega tvö prósent frá miðjum apríl til loka júní.
Til að bregðast við snarpri hækkun á verði þotueldsneytis hefur Icelandair nú þegar dregið flugframboð saman um rúmlega tvö prósent frá miðjum apríl til loka júní. vísir/vilhelm

Óveðurskýin í rekstrarumhverfi flugfélaga hrannast upp núna þegar verð á þotueldsneyti hefur meira en tvöfaldast frá því að stríðsátökin brutust út við Persaflóa í lok febrúar og að óbreyttu er útlit fyrir, að mati sumra greinenda, að Icelandair þurfi að grípa til sömu aðgerða og aðrir keppinautar með því að skerða enn meira framboð flugsæta til Keflavíkur. Það mun „óhjákvæmilega“ setja mark sitt á innlenda ferðaþjónustu.


Tengdar fréttir

Margt sem bendir til að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábóta­vant

Þótt fyrirtækin standi almennt vel að vígi til að mæta efnahagsáföllum þá er staðan nokkuð misjöfn milli atvinnugreina og er margt sem bendir til þess að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábótavant, að mati Seðlabankans, einkum vegna þess hversu sveiflukennd eftirspurnin getur verið. Ekki eru hins vegar enn sem komið skýrar vísbendingar um samdrátt í greininni í ár.

Ef snúa á við rekstri Icelandair er nær ekkert svigrúm til launa­hækkana í dollar

Veiking Bandaríkjadals á liðnu ári hafði verulega neikvæð áhrif á afkomu Icelandair og skýrir að stórum hluta rekstrartap flugfélagsins þrátt fyrir ágætis tekjuvöxt og bata á fjórða ársfjórðungi, að sögn hlutabréfagreinanda. Verðmat á félaginu hækkar lítillega í nýrri greiningu en þar undirstrikað að ef stjórnendum á að takast að rétta við reksturinn þá er nær ekkert svigrúm fyrir launahækkunum í Bandaríkjadollar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×