Innlent

Fjórir í varð­haldi vegna Detti­fossmálsins

Eiður Þór Árnason skrifar
Tveir mannanna eru starfsmenn Eimskips.
Tveir mannanna eru starfsmenn Eimskips. vísir/Vilhelm

Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli sem snýr að innflutningi á rúmlega fjórtán lítrum af amfetamínbasa, að sögn lögreglu. Áður kom fram að þrír þeirra hafi verið handteknir í viðamiklum aðgerðum um miðjan apríl í tengslum við meintan innflutning með Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips.

Sá fjórði var handtekinn í síðustu viku. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að gæsluvarðhald yfir þeim síðastnefnda hafi verið framlengt til 5. maí á grundvelli rannsóknarhagsmuna og hið sama gildi um einn af hinum þremur.

Hinum tveimur hafi sömuleiðis verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi en nú á grundvelli almannahagsmuna til 25. maí. Fjórmenningarnir eru sagðir vera íslenskir og á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri. 

Fram hefur komið að tveir mannanna séu starfsmenn Eimskips og ekki áður komið við sögu lögreglu. Alls voru sex handteknir í aðgerðum lögreglu og Tollgæslu um miðjan mánuðinn en þrír síðar látnir lausir. Lögregla lagði hald á amfetamínbasann um borð í gámaflutningaskipi Eimskips 13. apríl. 

Amfetamínbasi er yfirleitt notaður til að framleiða amfetamín, en ekki er hægt að áætla nákvæmlega hversu mikið magn fjórtán lítrar myndu skila án þess að vita styrkleika efnisins. Í Saltdreifaramálinu taldi lögregla að 40 lítrar af amfetamínbasa gætu skilað 170 kílóum til dreifingar. Talið er að haldlagning af þessari stærðargráðu muni hafa áhrif á fíkniefnamarkaðinn.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×