Fella niður bátsferðir en fjölga flugferðum Eiður Þór Árnason skrifar 28. apríl 2026 19:29 Íbúar í Vestmannaeyjum hafa lýst yfir óánægju með stöðu mála. Vísir/vilhelm Stjórnvöld hyggjast framlengja samning um áætlunarflug milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur og verður flugferðum fjölgað í tvær á dag. Þetta er hluti af aðgerðum til að bregðast við erfiðri stöðu í samgöngumálum Eyjamanna en um svipað leyti felldi fyrirtæki niður bátsferðir sem fyrirhugaðar voru næstu helgi.
Nokkuð hefur verið fjallað um ástand samgöngumála á svæðinu en ferjan Herjólfur hefur glímt við bilun á sama tíma og þurft að fara lengri leið til Þorlákshafnar vegna slæms ástands í Landeyjahöfn. Fyrirtækið Ribsafari tilkynnti í dag að ekki verði boðið upp á ferðir milli lands og Eyja um helgina í tengslum við utanvegahlaupið Puffin Run sem dregur fólk gjarnan víða að. Stjórnvöld vonast til að Landeyjahöfn verði opnuð á ný í næstu viku, með þeim fyrirvara að öldu- og veðurspár gangi eftir. Tvær flugferðir verða farnar milli Reykjavíkur og Eyja alla daga vikunnar frá og með fimmtudeginum 30. apríl, að því er fram kemur í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu. „Til lengri tíma er búist við miklum úrbótum í rekstri hafnarinnar næsta haust þegar belgíski verktakinn Jan de Nul tekur við dýpkun, með mun öflugri búnaði og viðbragði en nú þekkist,“ segir í tilkynningunni. Of grunnt hefur verið í Landeyjahöfn og hafa óhagstæð veðurskilyrði torveldað dýpkun. Hefur hún verið lokuð frá því í janúar. Á sama tíma er unnið að því að gera Herjólf III haffæran og er vonast til að skipið verði tilbúið 5. maí, að sögn innviðaráðuneytisins. Það geti þá verið varaskip fyrir Herjólf IV sem hefur siglt á skertum afköstum síðustu vikur vegna bilunar. Ribsafari segir að ástæðan fyrir því að fallið hafi verið frá bátsferðum um helgina sé sú að þegar verið var að hífa bátinn á flot kom í ljós að viðgerð sem gerð var á botnloka væri ófullnægjandi. „Báturinn var því hífður upp aftur og viðgerð lýkur ekki fyrir helgina. Þó svo að viðgerðin kláraðist fyrir helgi er enginn veðurgluggi til að setja hann á flot,“ segir í færslu á Facebook-síðu fyrirtækisins. Stjórnendur taki enga áhættu þegar kemur að öryggi farþega sinna. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Ferðatíminn þrefaldist þegar skólastarf hefst Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira