Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. apríl 2026 16:05 Bergrún segir aðkomuna ekki hafa verið sérstaka. Skemmdir voru unnar á salernisskúr á tjaldsvæðinu í Höfðavík á Hallormsstað í vikunni. Skógarvörður segir ekki ljóst hver ber ábyrgð á skemmdunum, sem eru töluverðar. „
Á föstudagsmorguninn þegar við komum til vinnu og vorum að fara yfir klósettin þá komumst við að því að á öðru salerninu sem við vorum búin að opna út í Höfðavík var búið að brjóta vask, spegil, hillur og ofn,“ segir Bergrún Arna Þorsteinsdóttir skógarvörður á Hallormsstað í samtali við Vísi. Austurfrétt greindi fyrst frá skemmdarverkunum. Að sögn Bergrúnar er ekki vitað með vissu hver ber ábyrgð. Hún hafi sjálf séð til hóps úr fjarlægð í yngri kantinum á svæðinu síðasta miðvikudag, sem hún hafi ekki skipt sér af. Ekki sé ljóst hvaða fjárhæðum tjónið nemi að svo stöddu. „Þetta er auðvitað alltaf tjón þegar þú þarft að kaupa nýtt inn og breyta og þú færð kannski ekki akkúrat það sem var þarna áður og þarft kannski að breyta einhverju. Svo við erum ekkert farin að skoða hvað þetta er mikið tjón en við förum í það eftir helgi.“ Býstu við því að þið munið tilkynna málið til lögreglu? „Þegar við vitum ekki hver það er þá er það kannski erfitt. Við erum búin að láta lögregluna vita að þetta skemmdarverk varð en við erum að vonast til þess að sá sem gerði þetta, að hann komi til okkar og ræði málin við okkur.“ Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Tjaldsvæði Múlaþing Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira