Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar 22. apríl 2026 16:16 Þegar tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við Evrópusambandið kom til umræðu á Alþingi kom fram hugmynd frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur um að óska eftir áliti Feneyjanefndar Evrópuráðsins á tillögunni. Það var góð hugmynd og ég lagði til við utanríkismálanefnd að þessi leið yrði farin. Nú liggur álitið fyrir. Þar staðfestir Feneyjarnefndin að fyrirhugað fyrirkomulag samræmist evrópskum stöðlum um lýðræðislegar kosningar, að því gefnu að ráðleggingum nefndarinnar sé fylgt að öðru leyti. Mikilvægi skýrrar upplýsingagjafar Þjóðaratkvæðagreiðslan uppfyllir þannig formkröfur, en Feneyjanefndin leggur ríka áherslu á nauðsyn vandaðrar upplýsingagjafar til almennings. Undir það er auðvelt að taka. Við vitum að orðalagið „halda áfram“ hefur valdið deilum hér á landi, þótt afstaða íslenskra stjórnvalda og Evrópusambandsins sé skýr: Umsókn Íslands er gild og viðræður sem færu í gang í kjölfar “jásins” yrðu framhald að mati beggja aðila. Að því sögðu kann að vera ferðarinnar virði að reyna að finna orðalag spurningarinnar sem breiðari sátt næst um. En jafnvel þótt orðalaginu yrði breytt, til dæmis í „sækjast eftir“ eða „opna að nýju“, dregur það í engu úr mikilvægi góðrar og hlutlægrar upplýsingagjafar til almennings, líkt og Feneyjanefndin leggur áherslu á. Ekki kosið um aðild, heldur viðræður Eitt mikilvægasta atriði álitsins snýr að því að gera kjósendum grein fyrir lagalegum afleiðingum atkvæðis síns. Feneyjanefndin leggur áherslu á að það verði að vera algjörlega skýrt að hér sé kosið um framhald samningaferlis en ekki inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Ef niðurstaðan verður sú að viðræður hefjist að nýju og þeim ljúki með samningi, þarf jafnframt að liggja fyrir að lokaniðurstaðan verði borin undir þjóðina í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Nefndin telur að þessi atriði verði að koma skýrt fram í opinberu kynningarefni stjórnvalda. Jafnframt þarf að gera kjósendum ljóst að ekkert sem rætt og ákveðið var í viðræðunum 2009–2013 sé fast eða endanlegt. Heildarniðurstöður viðræðna liggja ekki fyrir fyrr en öllum köflum hefur verið lokað og aðildarsamningur undirritaður. Alþingi á lokaorðið Samandregið er umsögn Feneyjanefndarinnar vönduð og veitir Alþingi mikilvægt veganesti. Hún sýnir að við erum á réttri braut í því að tryggja að ákvörðun þjóðarinnar byggi á skýrum forsendum og traustum lýðræðislegum grunni. Nú hvílir sú ábyrgð á okkur á Alþingi að tryggja að farið verði að þessum ráðleggingum. Það er til þess fallið að stuðla að sem breiðastri sátt um þjóðaratkvæðagreiðsluna sjálfa og umgjörð hennar, jafnvel þótt við verðum ekki öll sammála um hvert svarið við spurningunni eigi að vera. Höfundur er formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pawel Bartoszek Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er mikilvægast? Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar
Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar
Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar