Neymar æfur: „Enginn maður þolir þetta“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. apríl 2026 15:31 Stuðningsmenn Santos sendu Neymar tóninn eftir tap fyrir Fluminense um helgina. getty/Miguel Schincariol Illa gengur hjá Santos og aðalstjarna liðsins, Neymar, brást illa við gagnrýni eftir tap fyrir Fluminense um helgina.
Á sunnudaginn laut Santos í lægra haldi fyrir Fluminense, 2-3, á heimavelli. Stuðningsmenn Santos voru langt frá því að vera ánægðir eftir leikinn og púuðu á Neymar þegar hann gekk af velli. Hann brást við með því að setja fingurna í eyrun á sér. Ekki minnkaði reiði stuðningsmannanna við þetta uppátæki Neymars en hann segir að um misskilning hafi verið að ræða. „Nú er komið að því að ég þurfi að útskýra kláða í eyra! Góðir hálsar, í hreinskilni sagt eruð þið að ganga of langt og fara yfir öll mörk … það er svo sorglegt að þurfa að búa við þetta! Enginn maður þolir þetta,“ skrifaði Neymar á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Neymar Jr (@neymarjr) Í viðtali við TNT Sports tók Neymar enn sterkar til orða. „Má ég ekki einu sinni klóra mér í eyranu núna? Farið til helvítis,“ sagði framherjinn. Neymar gerir sér enn vonir um að komast í HM-hóp Brasilíu. Hann hefur ekki leikið með brasilíska landsliðinu síðan hann sleit krossband í hné í leik gegn Úrúgvæ í október 2023. Neymar er markahæsti leikmaður í sögu brasilíska landsliðsins með 79 mörk. Hann hefur leikið með Brössum á þremur heimsmeistaramótum. Hinn 34 ára Neymar sneri aftur til Santos í byrjun síðasta árs. Í janúar síðastliðnum framlengdi hann samning sinn við félagið til loka þessa árs. Santos er í 15. sæti brasilísku úrvalsdeildarinnar með þrettán stig eftir tólf leiki. Neymar hefur skorað þrjú mörk í sex deildarleikjum á tímabilinu.
Fótbolti Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira