Goðsögn tekur við og þjálfar son sinn Sindri Sverrisson skrifar 20. apríl 2026 16:30 Gheorghe Hagi er dýrlingur í rúmenskum fótbolta. Getty/Robbie Jay Barratt Rúmenska fótboltagoðsögnin Gheorghe Hagi, sem á sínum tíma skoraði 35 mörk í 124 landsleikjum, hefur nú verið ráðinn landsliðsþjálfari Rúmena.
Hagi var án nokkurs vafa í hópi allra bestu knattspyrnumanna heims þegar hann var upp á sitt besta, fékk gælunafnið Maradona Karpatafjallanna og afrekaði það að spila fyrir erkifjendurna Real Madrid og Barcelona. Á þessari öld hefur hann svo farið út í þjálfun, í Rúmeníu og Tyrklandi, og nú er hann tekinn við rúmenska landsliðinu. Einn af lykilmönnum þess liðs síðustu ár er Ianis Hagi, sonur þjálfarans, sem nú spilar með Alanyaspor í Tyrklandi. Gheorghe Hagi setur markið hátt í sínu nýja starfi og vill koma Rúmeníu aftur í hæstu hæðir en liðið er aðeins í 56. heimslista FIFA, eftir að hafa hæst komist í 3. sæti og til að mynda verið í 7. sæti árið 2015. Liðið hefur ekki komist á HM síðan árið 1998 en var með á síðasta Evrópumóti og féll þar út í 16-liða úrslitum. Tekur við af þeim sem valdi hann fyrst „Markmið okkar er að vinna alla leiki. Markmið okkar er að vinna Þjóðadeildina. Markmið okkar er að komast á Evrópumótið [2028]. Ég var fæddur til að vinna, ekki bara til þess að vera til,“ sagði Hagi. Hann hóf reyndar þjálfaraferil sinn árið 2001 með rúmenska landsliðið en entist þá bara þrjá mánuði í starfi. „Ég var ungur og eirðarlaus. Ég hef breyst. Er reynslumeiri og meiri þjálfari á allan hátt,“ sagði Hagi. Hann tekur við rúmenska landsliðinu af Mircea Lucescu sem lést fyrr í þessum mánuði, áttræður að aldri. Lucescu var sömuleiðis goðsögn í rúmenskum fótbolta og gaf Hagi einmitt fyrsta tækifærið með landsliðinu, 18 ára gömlum, og gerði hann að fyrirliða tveimur árum síðar. „Hann vildi að ég tæki við sem þjálfari,“ sagði Hagi.
Fótbolti Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira