Erlent

Barist á hafi úti

Jón Þór Stefánsson skrifar
Svo virðist sem bardagi sé hafinn á hafi.
Svo virðist sem bardagi sé hafinn á hafi.

Íranir gerðu í kvöld drónaárás á bandarísk herskip, samkvæmt írönskum ríkismiðlum.

Talið er að Ísraelsher ætli að bregðast við árásinni af miklum krafti.

Líklega er árás Írana viðbragð við því að fyrr í kvöld skaut bandaríski sjóherinn á Íranskt flutningaskip við Óman sem hafði ekki hlýtt á stöðvunarmerki. Í kjölfarið tóku Bandaríkjamenn yfir skipið.

Í írönskum fjölmiðlum var því haldið fram að skot Bandaríkjamanna, sem var líkt við sjóræningja, hafi verið brot á vopnahléi, og að Íranir myndu bregðast við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×