Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Jón Þór Stefánsson skrifar 19. apríl 2026 17:50 Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Einn ökumaður var stöðvaður á höfuðborgarsvæðinu í dag á 151 kílómeters hraða. Annar ók á 133 kílómetra hraða, og nokkrir aðrir á um 120 kílómetra hraða.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sá sem ók hraðast, líkt og áður segir á rúmlega 150 kílómetra hraða, gerði það á áttatíu-götu í umdæmi lögreglustöðvar tvö, sem sér um Hafnarfjörð og Garðabæ. Þar voru þrír aðrir sektaðir fyrir of hraðan akstur. Sá næst hraðasti, á rúmlega 130 kílómetra hraða, ók einnig á áttatíu-götu í umdæmi lögreglustövðar þrjú, sem sér um Kópavog og Breiðholt. Þar voru níu aðrir sektaðir fyrir of hraðan akstur. 10 ökumenn sektaðir fyrir of hraðan akstur en sá sem hraðast ók var á 133 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Í umdæmi lögreglustöðvar eitt, sem sér um miðbæinn, austurbæ, vesturbæ og Seltjarnarnes, annars vegar og umdæmi Lögreglustöðvar fjögur, sem sér um Mosfellsbæ, Grafarvog, og Árbæ, hins vegar voru samanlagt þrír teknir við of hraðan akstur á áttatíu-götu, allir á um 120 kílómetra hraða. Þá var einstaklingur handtekinn í umdæmi lögreglustöðvar eitt grunaður um valda umferðaróhappi með því að aka bíl sínum á ljósastaur. Sá var einnig grunaður um ölvun við akstur og vistaður af lögreglu þangað til hægt var að ræða við hann. Honum var síðan sleppt úr haldi og telst málið fullrannsakað.
Lögreglumál Mest lesið Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Erlent Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Innlent Fleiri fréttir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Sjá meira