Erlent

Skotið hafi verið á olíuflutningaskip á Hormússundi

Eiður Þór Árnason skrifar
Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. Getty

Tvö skip Íranska byltingavarðarins hafa skotið á olíuflutningaskip á Hormússundi, að sögn Sjóviðskiptastofnunar Bretlands (UKMTO). Átti atvikið sér stað tuttugu sjómílur norðaustur af Óman. Olíuflutningaskipið og áhöfnin eru sögð heil á húfi.

BBC greinir frá. Reuters hefur eftir heimildarmönnum að minnst tvö önnur kaupskip hafi orðið fyrir skothríð þegar þau reyndu að fara um sundið. 

Nokkur kaupskip fengu skilaboð frá íranska sjóhernum þar sem sagði að Hormússundi hefði verið lokað aftur, að því er heimildarmenn úr skipaiðnaðinum segja Reuters.

Íranski sjóherinn tjáði áhöfnum olíuflutningaskipana að engum skipum væri heimilt að fara um sundið, bæta heimildarmennirnir við.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×