„Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 18. apríl 2026 13:46 Steinunn Þórðardóttir er formaður Læknafélags Íslands. Vísir/Vilhelm Uppsögn Ragnars Freys Ingvarssonar, formanns Læknafélags Reykjavíkur, vakti ugg meðal starfsmanna sem sinna trúnaðarstörfum innan heilbrigðisþjónustunnar. Tólf formenn taka höndum saman til að mótmæla uppsögnum þeirra sem sinna trúnaðarstörfum í þágu heilbrigðisstarfsmanna.
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, auk ellefu annarra formanna fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu, skrifuðu grein þar sem þau segja að tryggja verði að þeir sem tali fyrir hönd heilbrigðisstarfsmanna og sjúklinga geti gert það án ótta. „Ef ég byrja á byrjuninni þá auðvitað er upphafið á þessu máli uppsögn Ragnars Freys Ingvarssonar, formanns Læknafélags Reykjavíkur, og ég held að við höfum bara öll fundið það að þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann,“ segir Steinunn. „Hér er náttúrulega verið að segja upp formanni Læknafélags Reykjavíkur, sem er stéttarfélag, og stjórnarmanni í Læknafélagi Íslands sem gegngir trúnaðarstörfum fyrir sitt samstarfsfólk.“ Fjöldi fólks sinni trúnaðarmannastörfum og formennsku í stéttarfélögum heilbrigðisstarfsfólks svo það vakni upp spurningar um hvaða þýðingu uppsögn Ragnars hefur fyrir þau. „Þetta getur því miður haft þessar afleiðingar að það verði ákveðin þöggun, sem er mjög alvarlegt mál í kerfi eins og heilbrigðiskerfinu, þar sem rödd starfsfólks skiptir öllu máli í að benda á bresti til þess að viðhalda góðri öryggismenningu og öryggi sjúklinga,“ segir hún. Uppsögnin ólögmæt Þegar hefur félag Ragnars lýst yfir furðu og vonbrigðum með ákvörðun Landspítalans og telur uppsögnina ólögmæta. Steinunn segir að líkt og málið blasi við núna telji Læknafélag Íslands einnig uppsögnina ólögmæta. „Hér er náttúrulega verið að segja manni upp sem gegnir trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélag og á að í rauninni að búa við ríkulega vernd til þess að hann þá hafi þor og geti tjáð sig,“ segir hún. Á sama tíma og Ragnari hafi verið sagt upp sé verið að bjóða fólki hærra starfshlutfall á sama sviði. „Við vitum alveg öll sem þekkjum til starfsemi Landspítalans að á akkúrat þessu sviði þar sem hann starfar er gríðarleg mannekla og núna er verið að óska eftir fleiri höndum á dekk til að taka aukavaktir vegna þess að það vantar svo marga. Við furðum okkur á því að í þessu umhverfi sé hægt að segja upp læknum í framlínu sem sinna sjúklingum.“ Þurfi að leita utan höfuðborgarsvæðið eða erlendis Í grein formannanna er vakin athygli á því að missi heilbrigðisstarfsmaður starf sitt geti það þýtt að hann missi möguleikann á að starfa áfram í sinni grein innanlands. „Það að vera sagt upp á Landspítalanum hefur miklu meiri afleiðingar en það gerir í stærri samfélögum. Þannig að þetta er náttúrulega eini spítalinn á höfuðborgarsvæðinu, þannig að það er ekki hægt að segja, heyrðu farðu bara eitthvert annað að vinna,“ segir Steinunn. Eina lausnin er að fara út fyrir höfuðborgarsvæðið eða erlendis. Íslenskir læknar sem þegar starfa erlendis hafa haft samband við félagið og lýst yfir áhyggjum vegna andrúmsloftsins sem virðist ríkja á vinnustaðnum. „Þetta virðist tengjast hans störfum sem trúnaðarmaður og að þetta sé ákveðin refsing fyrir að halda uppi gagnrýnni umræðu og það er ekki umhverfið sem er aðlaðandi umhverfi.“
Landspítalinn Heilbrigðismál Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira