„Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 17. apríl 2026 07:01 Fólk er menning, segir Kathryn Elizabeth Gunnarsson, Global Talent & People Experience hjá Alvotech um þá áskorun að skapa góða vinnustaðamenningu þar sem fólk er úr ólíkum áttum. Hjá Alvotech starfa 1100 á Íslandi en til viðbótar eru um 500 starfsmenn víðs vegar um heiminn. Vísir/Vilhelm „Það er ekki beint eins og veðrið sé alltaf að hjálpa okkur. Því stundum hefur fólk verið að lenda á Íslandi í stormi og varla litist á blikuna, jafnvel þannig að flugvél geti ekki lent eða fluginu sé aflýst,“ segir Kathryn Gunnarsson, Global Talent & People Experience hjá Alvotech, og hlær.
Enda hluti starfsins að finna vel hæft starfsfólk erlendis frá og reyna að „selja“ því hugmyndina um að flytja til Íslands, oft með maka og börn. Kathryn segir Ísland samt hafa upp á mjög margt að bjóða fyrir fólk sem kemur úr stærri samfélögum. „Það er til dæmis gott að ala upp börn á Íslandi og hér stutt í allar áttir, varla að það taki þig lengri tíma en 20 mínútur að komast til vinnu. Erlendis er fólk vant því að vera kannski allt að einn og hálfan tíma í vinnuna. Hvora leið!“ Fyrst og fremst er Alvotech þó spennandi vinnustaður fyrir fólk búsett hér nú þegar að starfa hjá. Enda starfrækir félagið meðal annars Alvotech skóla til þess að þjálfa upp fólk í sérfræðistörf. Starfsfólk á Íslandi er um eitt þúsund. Í heiminum öllum um 1500 manns samtals, frá 70 þjóðerni. Starf Kathryn kemur að mannauðsmálunum má segja frá a-ö: „Allt frá því þegar ákvörðun um ráðningu er tekin og tryggja þarf að nýr starfsmaður upplifi vinnustaðinn á jákvæðan hátt, yfir í hvernig fólki líður þegar það er að vinna hér, yfir í hvernig við kveðjum fólk enda aldrei að vita hvort fólk sem hættir snúi aftur til starfa og svo framvegis,“ segir Kathryn. Sem sjálf hefur reynslu af því að starfa sem stjórnandi fyrir alþjóðleg fyrirtæki í Bretlandi, auk þess að hafa sett á laggirnar rekstur á Íslandi eftir að hún flutti til Íslands árið 2016. Í Atvinnulífinu í gær og í dag er fjallað um samsetningu ólíkra hópa með tilliti til uppbyggingar á vinnustaðamenningu. Fólk er menning Að starfa á ólíkum tímabeltum er áskorun út af fyrir sig, en Alvotech starfar í Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum. „Bara það eitt að tryggja góða upplýsingamiðlun felur það í sér að hér þarf að hugsa um tímasetninguna með tilliti til mismunandi tímabelta. Því við leggjum mikla áherslu á að allir upplifi sig sem hluta af teyminu; að tilheyra skiptir miklu máli,“ nefnir Kathryn sem dæmi um hvernig góð upplýsingamiðlun snýst ekki aðeins um það að koma réttum upplýsingum til skila á sem bestan hátt. Heldur líka hvenær og hvernig. „Starfsstöðvar og útibú geta líka verið mjög ólík. Sumt starfsfólk vinnur á útibúum sem við rekum í löndum eins og Sviss, Þýskalandi, í Svíþjóð eða Indlandi á meðan aðrir starfa í fjarvinnu heiman frá sér. Þetta eru svokallaðar dreifingarmiðstöðvar enda hluti af okkar starfsfólki sérfræðingar sem starfa við sína sérfræði í heilbrigðisgeiranum en tilheyra einnig okkar teymi.“ En hvernig er hægt að byggja upp vinnustaðamenningu með svona marga innanborðs, ólíka einstaklinga, störf, útibú og svo framvegis? „Það sem skiptir mestu máli í því er að horfa á vinnustaðamenninguna út frá fólkinu sjálfu. Því í raun er menning ekkert nema fólkið sjálft. Við erum öll hluti af menningu og við sem starfsfólk sköpum menninguna. Samskiptin okkar í milli eru til dæmis hluti af menningu,“ svarar Kathryn sem dæmi. Kathryn segir svo margt vera hluta af menningu vinnustaða. Samskipti þar á meðal. Það sé í góðu lagi þótt hópar séu ólíkir innbyrðis. Hins vegar skipti máli að rýna í og skilja hvað það er sem hvetur fólk áfram á vinnustaðnum. Vísir/Vilhelm Hver er hvatinn? Kathryn segir mikilvægt að horfa á fólk sem menningu og viðurkenna þá um leið að menning getur verið ólík. „Því það er hægt að standa fyrir endalausum vinnustofum eða búa til handbækur og ramma um hvernig menning eigi að vera eða byggja upp. En ef fólk er ekki að upplifa sjálft sig sem menninguna skilar þessi vinna litlu.“ Ef starfsfólk fær þau skilaboð að það sé í raun undirstaða menningarinnar er tilfinning fyrir því að tilheyra strax komin. „Að fólk upplifi sig tilheyra hópi er lykilatriði sem þarf til að byggja upp liðsheild.“ Fyrst er þó að rýna í það hvað drífur fólk áfram. „Hver er hin raunverulega hvatning fólks er spurningin sem við þurfum alltaf að velta fyrir okkur. Þessi hvati getur verið mjög mismunandi. Stjórnendateymið er kannski að horfa á tekjurnar og framgang félagsins í heild með hag hluthafa að leiðarljósi á meðan einhver sem er í mjög sérhæfðu starfi upplifir sinn hvata vera að auka á öryggi sjúklinga.“ Kathryn segir vinnustaðamenningu byggjast upp smátt og smátt eins og hús. Þar sem hver eining skiptir máli. Grunnurinn þarf að vera sterkur því á honum stendur húsið. Það sem þetta þýðir er að stjórnendur eru í lykilhlutverki því eftir höfðinu dansa limirnir. Á endanum eru það samt allir starfsmenn sem skipta máli, því án fólksins verður sterkur grunnur ekki byggður.“ Góðu ráðin í þessum efnum sé að tryggja að hópurinn í heild sinni hafi séu leiðarljósi það sem fyrirtækið stendur fyrir, viti hver markmið þess eru og gildi. „Í okkar tilfelli er sá hvati sameiginlegur að fólk fái ódýrari lyf og að fólki sé tryggt aðgengi að lyfjum. Þetta markmið sameinar okkur, óháð því hversu mörg við erum eða frá hversu ólíkum stöðum við erum,“ segir Kathryn en bætir við: „Síðan að hver og ein eining eða einstaklingur fái frelsi til að vera hluti af því að skapa frábæra vinnustaðamenningu. Vinnustaðamenning er nefnilega ekki eitthvað fyrirbæri þar sem eitthvað eitt hentar öllum. Vegvísirinn þarf vissulega að vera til staðar en á endanum snýst þetta bara um mannauðinn sjálfan og þá hvata sem drífur fólkið áfram innan fyrirtækisins.“ Hluti mannauðsteymis Alvotech. Fremri röð fv: Kristrún Haraldsdóttir, Gyða Gunnarsdóttir, Kathryn, Hreinn Örnólfsson. Aftari röð fv: Andri Sigurðsson, María Erla Hilmarsdóttir og Hallveig Andresdóttir.Vísir/Vilhelm Lykilatriðin fjögur En er engin hætta á að fyrirtæki missi svolítið þetta mannlega eða persónulega, þegar þau eru orðin svona stór? „Nei, en vissulega felast í því ákveðnar áskoranir og í þessum efnum er hlutverk stjórnandans gífurlega mikilvægt,“ svarar Kathryn en nefnir fjögur atriði sem hún segir vera lykilatriði til þess að vel takist til. Fyrsta atriðið sé að fólki finnist það tilheyra; að það upplifi sig skipta máli innan liðsheildarinnar. Fólk vill líka að á það sé hlustað og eftir því sé tekið. „Það þurfa allir að upplifa viðurkenningu fyrir starfið sitt, óháð því hvert starfið er,“ segir Kathryn. Þriðja atriðið er að tryggja að stuðningur og aðstæður séu til staðar þannig að fólk geti sinnt því starfi og því hlutverki sem því er ætlað að sinna. „Loks er það félagslegi hlutinn og hvernig fólk er að upplifa það að vinna á þessum vinnustað. Er það stolt af fyrirtækinu og því sem það stendur fyrir?“ nefnir Kathryn loks sem fjórða og síðasta lykilatriðið. Öll þessi fjögur atriði þurfa að skoðast og vera tryggð. Annars fer allt annað að brotna upp. Hvort sem það er liðsheildin, starfsánægjan, afköst eða drifkrafturinn fyrir því sem við erum að gera í vinnunni okkar.“ Það mannlega sé því í raun alltaf í forgrunni þegar kemur að því að byggja upp vinnustaðamenningu. Óháð því hvort hópurinn samanstandi af mörgum,óóháðm einstaklingum eða ekki. „Þér þarf alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli.“
Mannauðsmál Vinnustaðamenning Tengdar fréttir Fimm konur og fjörutíu karlar: „Ertu ekki að djóka í mér?!“ „Við erum að tala um þvílíkar rokkstjörnur á sviðinu. Þannig var stemningin,“ segir segir Tanya Zharov, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Alvotech, í upphafi viðtals um Heimsþing kvenleiðtoga sem haldið var í Reykjavík þessa vikuna. 16. nóvember 2023 07:01 Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ „Í þessu ferli er samt mikilvægt að stjórnendur kunni að sýna ákveðna auðmýkt,“ segir Eydís Líndal Finnbogadóttir, forstjóri Náttúrufræðistofnunar. 16. apríl 2026 07:02 Fólki á helst að líða betur eftir vinnudaginn en þegar það mætti „Ég hef oft heyrt þessa spurningu: Hvers vegna er geðheilsa starfsfólks okkar vandamál? Hvers vegna eigum við að borga sálfræðiþjónustu fyrir starfsfólk sem er til dæmis í vanlíðan vegna erfiðleika í hjónabandinu,“ segir Sigrún Ósk Jakobsdóttir mannauðstjóri Advania. 10. október 2024 07:01 Margföldunaráhrif: Að ráða einn alþjóðlegan sérfræðing skapar vinnustaðnum fimm sérfræðinga „Það er talað um að einn alþjóðlegur sérfræðingur sem ráðinn er inn á íslenskan vinnustað, skapi fimm sérfræðinga,“ segir Nanna Elísa Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins (SI) sem dæmi um hversu mikil verðmæti geta falist í því fyrir íslensk fyrirtæki að ráða erlenda sérfræðinga til starfa. 7. desember 2023 07:00 Smiður í mannauðsmálin: „Okkur vantar okkar Óla Stef í hjúkrunarfræðina“ „Ég segi fyrir mitt leyti að það hafði ekki tekist í grunnskóla að vekja áhuga minn á einhverju til að stefna á í framhaldsskóla. Ég fór í Verkmenntaskólann á Akureyri eftir grunnskóla en það var eiginlega bara af skyldurækni. Ég vissi ekkert hvað ég var að gera þar,“ segir Daníel Gunnarsson, mannauðssérfræðingur hjá Alvotech. 19. maí 2023 07:00 Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Satt eða logið: Nýjar áskoranir fyrir neytendur og auglýsendur „Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ „Svona samtöl snúast ekki um að skamma fólk fyrir fjarvistir“ „Mér er drull um vinnustað sem er drull um mig“ Það er enginn aumingjaskapur að halda ekki fókus Er sjálf besti leikmaðurinn: „Ég þurfti að gúggla mörkin hans“ Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Réttu tækifærin opnuðust þegar sumarstarfsmaður var ráðinn sem sendill „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Þegar óvissa vegna breytinga vofir yfir í langan tíma Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Í röngu starfi og vansæl Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og viðkvæmu samtölin „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ „Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“ Sjá meira
Fimm konur og fjörutíu karlar: „Ertu ekki að djóka í mér?!“ „Við erum að tala um þvílíkar rokkstjörnur á sviðinu. Þannig var stemningin,“ segir segir Tanya Zharov, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Alvotech, í upphafi viðtals um Heimsþing kvenleiðtoga sem haldið var í Reykjavík þessa vikuna. 16. nóvember 2023 07:01
Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ „Í þessu ferli er samt mikilvægt að stjórnendur kunni að sýna ákveðna auðmýkt,“ segir Eydís Líndal Finnbogadóttir, forstjóri Náttúrufræðistofnunar. 16. apríl 2026 07:02
Fólki á helst að líða betur eftir vinnudaginn en þegar það mætti „Ég hef oft heyrt þessa spurningu: Hvers vegna er geðheilsa starfsfólks okkar vandamál? Hvers vegna eigum við að borga sálfræðiþjónustu fyrir starfsfólk sem er til dæmis í vanlíðan vegna erfiðleika í hjónabandinu,“ segir Sigrún Ósk Jakobsdóttir mannauðstjóri Advania. 10. október 2024 07:01
Margföldunaráhrif: Að ráða einn alþjóðlegan sérfræðing skapar vinnustaðnum fimm sérfræðinga „Það er talað um að einn alþjóðlegur sérfræðingur sem ráðinn er inn á íslenskan vinnustað, skapi fimm sérfræðinga,“ segir Nanna Elísa Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins (SI) sem dæmi um hversu mikil verðmæti geta falist í því fyrir íslensk fyrirtæki að ráða erlenda sérfræðinga til starfa. 7. desember 2023 07:00
Smiður í mannauðsmálin: „Okkur vantar okkar Óla Stef í hjúkrunarfræðina“ „Ég segi fyrir mitt leyti að það hafði ekki tekist í grunnskóla að vekja áhuga minn á einhverju til að stefna á í framhaldsskóla. Ég fór í Verkmenntaskólann á Akureyri eftir grunnskóla en það var eiginlega bara af skyldurækni. Ég vissi ekkert hvað ég var að gera þar,“ segir Daníel Gunnarsson, mannauðssérfræðingur hjá Alvotech. 19. maí 2023 07:00