Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir og Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifa 15. apríl 2026 16:31 Í nútímasamfélagi eru símar orðnir órjúfanlegur hluti af daglegu lífi okkar. Þeir auðvelda samskipti, auka aðgengi að upplýsingum og styðja við faglega vinnu. En í umhverfi þar sem mannleg tengsl eru kjarninn, eins og á hjúkrunarheimilum, geta þeir jafnframt orðið truflun. Með þetta í huga hefur Hrafnista stigið mikilvægt skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu með innleiðingu „símalausra heimila”. Nærvera skiptir sköpum Á hjúkrunarheimilum býr einn viðkvæmasti hópur landsins. Margir íbúar glíma við einmanaleika eða félagslega einangrun, heilabilun eða skerta vitræna getu. Daglegt líf íbúa er háð samskiptum við starfsfólk og aðra íbúa auk aðstandenda og því eru mannleg tengsl mikilvæg svo íbúar upplifi öryggi og vellíðan. Niðurstöður úr reglubundnum þjónustukönnunum og viðtölum sýndu að íbúar Hrafnistu og aðstandendur þeirra fundu fyrir neikvæðum áhrifum einkasímanotkunar starfsfólks á vinnutíma. Einnig bentu niðurstöður vinnustaðagreininga til tækifæra til að auka traust og jákvæð samskipti enn frekar meðal starfsfólks. Ljóst var að þörf væri á breytingum. Þótt hagsmunir íbúa og aðstandenda væru megin drifkraftur verkefnisins þá var jafnframt horft til þess að þarna væri tækifæri til að styrkja tengsl og samheldni starfsfólks. Víðtæk undirbúningsvinna Símalaus heimili fela í sér að starfsfólk notar ekki einkasíma sína á hjúkrunardeildum, göngum, matsölum eða öðrum stöðum þar sem íbúar og þjónustuþegar dvelja. Slíkar breytingar kalla á samstillt átak og góða eftirfylgni. Með aukinni umræðu um áhrif símanotkunar á samskipti og líðan fundum við meðbyr og jákvæðni frá starfsfólki, íbúum og aðstandendum. Frá upphafi tók starfsfólk virkan þátt í innleiðingarferlinu, þar sem hugmyndir, ábendingar og sjónarmið voru rædd og nýtt til að móta framkvæmdina. Sú samvinna lagði grunn að raunhæfri og skýrri útfærslu. Innleiðingin fólst meðal annars í að setja skýrar væntingar um símanotkun, styðja við góða starfshætti í daglegu starfi og tryggja aðgengi að nauðsynlegum upplýsingum á vöktum. Til að auka gagnsæi voru vinnusímar merktir með áberandi hætti, þannig að íbúar og aðstandendur geti auðveldlega greint hvenær þeir eru notaðir í faglegum tilgangi. Jafnframt voru skilgreind sérstök svæði, Höfnin, þar sem starfsfólk getur farið afsíðis til að sinna einkasamskiptum þegar þörf krefur. Samhliða þessu starfaði vinnuhópur um að efla samskipti og virkni íbúa með fjölbreyttum hætti, meðal annars með skipulagðri dagskrá á kvöldin og um helgar, hugmyndabanka og sýnileika félagslegrar virkni. Sú vinna styður beint við markmið Hrafnistu og eykur gæði daglegs lífs íbúa. Símalausum heimilum Hrafnistu var hrint í framkvæmd í febrúar og við merkjum strax jákvæðar breytingar. Manneskjan í forgrunni Símar koma ekki endilega í veg fyrir góð samskipti. Hins vegar verður að gæta þess að setja tækninni skýr mörk og leyfa mannlegum tengslum að njóta sín. Stundum felst stærsta framfaraskrefið í því að stíga eitt skref til baka og vera einfaldlega til staðar. Símalaus heimili endurspegla stefnu Hrafnistu um að setja manneskjuna í fyrsta sætið og skapa rými fyrir það sem skiptir mestu máli, hlýju, tengsl og raunveruleg samskipti. Höfundar eru Gunnur Helgadóttir, framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Hrafnistu og Jakobína Hólmfríður Árnadóttir, mannauðsstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tækni Samfélagsmiðlar Mest lesið Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar