Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Jakob Bjarnar skrifar 15. apríl 2026 15:32 Tómas vildi taka það fram að það truflaði hann ekki hið minnsta þótt Samfylkingin noti hina ríkisstjórnarflokkana sem golfmottur fyrir utan dyr stjórnarheimilisins en þetta væri eitthvað annað. vísir/vilhelm Tómas Þór Þórðarson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins kvaddi sér hljóðs í dagskrárliðnum störf þingsins og gerði kynningarfund Samfylkingarinnar í Kópavogi að umtalsefni. Hann sagði að það kæmi sér hreint ekki á óvart að Samfylkingin notaði samstarfsflokkana í ríkisstjórn sem gólfmottur en þetta væri misbeiting á valdi. „
Mig langar hér, ótrúlegt en satt, að ræða störf þingsins, eða öllu heldur forsætisráðuneytisins. Síðastliðinn laugardag stóð hæstvirtur forsætisráðherra á bílaplani í Kópavogi og kynnti nýjasta útspil Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarmálum þar sem lofað var 16 milljarða útgjöldum ríkisins þrátt fyrir að hinir stjórnarflokkarnir voru ekki hafðir með í ráðum sem er auðvitað galið.“ Tómas vildi taka það fram að það truflaði hann ekki hið minnsta þótt Samfylkingin notaði hina ríkisstjórnarflokkana sem gólfmottur fyrir utan dyr stjórnarheimilisins. „Það er eitthvað sem þarf bara að ræða á hinum fallegu sameiginlegu þingflokksfundum,“ sagði Tómas. Hann vildi hins vegar vekja athygli á þeirri misbeitingu valds sem birtist í því hvernig boðað var til þessa fundar og hversu ólýðræðislegt það væri að forsætisráðuneytinu væri beitt til að gefa kosningaloforðum eins stjórnmálaflokks í sveitarstjórnarkosningum meira lögmæti en tilefni er til. „Nú var það ekki Samfylkingin sjálf sem boðaði til þessa fundar heldur forsætisráðuneytið. Fundarboðið kom beint úr stjórnarráðinu frá aðstoðarmanni ráðherra úr netfangi frá ráðuneytinu. Þarna er sjálfu forsætisráðuneytinu beitt í pólitískum tilgangi fyrir einn stjórnmálaflokk,“ sagði Tómas. Varaþingmaðurinn sagði það ekkert nýtt að Samfylkingin geri bara það sem henni sýnist, það hafi hún gert eftir að hún tók við stjórnartaumunum en þetta sé bara eitthvað allt annað. „Það er einfaldlega að öllu leyti óboðlegt í lýðræðisríki að beita valdamesta embætti Stjórnarráðsins með þeim hætti sem Kristrún Frostadóttir gerði um liðna helgi – enda keppast nú kollegar hennar í ríkisstjórn við það að bera af sér þessi kosningaloforð, nú síðast í morgun hæstvirtur fjármálaráðherra Viðreisnar í viðtali við Morgunblaðið.“ Tómas hæddist að Samfylkingunni, sagðist hafa skilng á því að hún væri skjálfandi á beinum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, einkum í Reykjavík þar sem „arfleið hennar verður að banna íslenskum börnum að borða lifrapylsu. En, það er ekkert annað en misbeiting á valdi og ólýðræðislegt í alla staði að beita sjálfu forsætisráðuneytinu í pólitískum leik fyrir einn stjórnmálaflokk.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Alþingi Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira