Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2026 19:32 Dominik Szoboszlai sló svo sannarlega ekki í gegn með hegðun sinni eftir að Liverpool steinlá á móti Manchester City í enska bikarnum. Getty/Simon Stacpoole Ungverski knattspyrnumaðurinn Dominik Szoboszlai hefur fengið harða útreið á samfélagsmiðlum eftir að hafa yppt öxlum frammi fyrir stuðningsmönnum Liverpool. Hann segir það hafa verið misskilning.
Atvikið átti sér stað þegar miðjumaðurinn gekk að stúkunni með stuðningsmönnum gestaliðsins eftir niðurlægjandi tap Liverpool fyrir Manchester City í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Szoboszlai virtist pirraður yfir móttökunum og sást yppa öxlum og veifa höndunum í átt að stuðningsmönnunum. Viðbrögðin fóru sem eldur í sinu um netið og urðu að umtalsefni meðal stuðningsmanna Liverpool. Nú útskýrir Szoboszlai hvað gerðist. "If it was a misunderstanding, then I apologise" 🗣️Dominik Szoboszlai explains his actions at full-time following Liverpool's defeat to Man City ⚽️ pic.twitter.com/Yw2H1gtYKk— Sky Sports News (@SkySportsNews) April 13, 2026 „Þetta var kannski misskilningur milli mín og stuðningsmannanna. Ég meinti ekkert illt með því. Auðvitað veit ég hvað stuðningsmennirnir þýða fyrir þetta félag og hvað þetta félag þýðir fyrir stuðningsmennina,“ segir Dominik Szoboszlai fyrir seinni leikinn gegn Paris Saint-Germain á Anfield annað kvöld. Liverpool er 0-2 undir í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir að hafa verið yfirspilað í París. „Ef þetta var misskilningur þá biðst ég afsökunar á því, en stuðningsmennirnir mega líka vita að mér líður ekkert betur en þeim. Mér líður nákvæmlega eins og þeim,“ útskýrir Szoboszlai nánar. „Til að taka af allan vafa: Ég er með þeim, við erum með þeim og vonandi eru þeir líka með okkur,“ bætir þessi 25 ára gamli leikmaður við. Liverpool hefur valdið miklum vonbrigðum eftir sigurinn í ensku úrvalsdeildinni í fyrra. Félagið frá Merseyside er í 5. sæti og á á hættu að missa af Meistaradeildarsæti á næsta tímabili.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Liverpool FC Mest lesið Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport Biðjast afsökunar eftir að keppandi kúkaði á sig Sport Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Íslenski boltinn Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Fótbolti Mbappé og Vinicius vildu ekki sýna Ceuta stuðning Fótbolti Arnar kynnti nýjasta hópinn og mætti í spjall Fótbolti „Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“ Fótbolti Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Körfubolti Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Handbolti Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn Fleiri fréttir Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Sjá meira