Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Árni Sæberg skrifar 10. apríl 2026 11:52 Aðgerðirnar voru kynntar á blaðamannafundi í morgun. Vísir/Bjarni Ríkisstjórnin hefur samþykkt að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti af dælu úr 24 prósentum í 11 prósent. Tímabundið lagaákvæði mun skylda söluaðila til að skila verðlækkun að fullu til neytenda og fela Samkeppniseftirlitinu að vakta að það sé gert.
Þetta er hluti aðgerða gegn verðbólgu, sem formenn stjórnarflokkanna kynntu á blaðamannafundi rétt í þessu. Vilja draga úr áhrifum á heimili og fyrirtæki Í fréttatilkynningu um aðgerðirnar segir að ríkisstjórnin hafi samþykkt tímabundnar efnahagsaðgerðir til að hemja verðbólgu og bregðast við verðhækkunum á olíu vegna stríðsátaka við Persaflóa. Markmið aðgerðanna sé að fletja út kúfinn vegna þessara hækkana og draga úr áhrifum þeirra á íslensk heimili og fyrirtæki. Aðgerðirnar séu tímabundnar á meðan mikil óvissa er um þróun mála sem gefi stjórnvöldum færi á að móta langtímaaðgerðir til að bregðast við breyttri stöðu. Með aðgerðunum vilji stjórnvöld leggja sitt af mörkum og setja fordæmi fyrir atvinnulífið til að stemma stigu við verðhækkunum. Lækka vask og fjölga hleðslustöðum Aðgerðirnar séu eftirfarandi: 1. Lækkun á dælu Með tímabundinni lækkun virðisaukaskatts úr 24% í 11% á eldsneyti af dælu 2. Vöktun á verðlagningu Með tímabundnu lagaákvæði sem skyldar söluaðila til að skila verðlækkun að fullu til neytenda og felur Samkeppniseftirlitinu að vakta að þetta sé gert Með því að styrkja verðlagseftirlit ASÍ um 15 milljónir til að hafa sérstakt eftirlit í sumar með verðlagningu á öllum helstu tegundum dagvöru og þjónustu 3. Fjölgun hleðslustöðva um land allt Með 500 milljóna átaki strax í sumar til að fjölga hleðslustöðvum við fjölbýlishús og gististaði og „loka hleðslugatinu“ hringinn í kringum landið Gert sé ráð fyrir að aðgerðirnar taki gildi 1. maí og renni út 31. ágúst á þessu ári. Lagafrumvarp um lækkun virðisaukaskatts á dælu og vöktun á verðlagningu verði lagt fram á Alþingi í næstu viku. Fjölgun hleðslustöðva verði styrkt með framlögum úr loftslags- og orkusjóði, sem verði kynnt á næstu dögum.
Verðlag Bensín og olía Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samkeppnismál Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira