Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Eiður Þór Árnason skrifar 8. apríl 2026 20:50 Ragnar Freyr Ingvarsson læknir var meðal annars um tíma umsjónarlæknir Covid-göngudeildar Landspítalans. Vísir/Ívar Ragnari Frey Ingvarssyni lækni hefur verið sagt upp störfum á Landspítala. Hann starfaði í um áratug sem sérfræðingur í almennum lyflækningum á sjúkrahúsinu í Fossvogi. Ragnar er einn af þekktari læknum landsins og hefur gefið út bækur og sjónvarpsþætti undir heitinu Læknirinn í eldhúsinu.
Hann kom einnig reglulega fram í fjölmiðlum þegar hann var yfirlæknir Covid-göngudeildar Landspítala. Ragnar greinir frá uppsögninni á Facebook-síðu sinni og segir framkvæmdastjóra á spítalanum hafa tilkynnt honum símleiðis í dag að staða Ragnars hafi verið lögð niður. Þegar hann hafi óskað eftir frekari skýringum hafi hann fengið þau svör að Landspítali væri undir ríkri aðhaldskröfu frá stjórnvöldum. „Mér er þó til efs að mikið sparist á uppsögn minni þar sem síðustu tvo mánuði og næstu sjö er ég í launalausu leyfi,“ segir Ragnar í Facebook-færslu sinni. Komið að stofnun bráðadagdeildar Ragnar hefur einnig starfað sem sjálfstætt starfandi læknir og er formaður Læknafélags Reykjavíkur. Hann komst nýverið í fréttir þegar hann vakti máls á því að starfsmenn myndu ekki fá páskaegg frá Landspítala þetta árið vegna niðurskurðar. En nú er komið að leiðarlokum. „Ég vil fyrst og fremst þakka samstarfsfélögum mínum og svo mínum nánasta yfirmanni fyrir samstarfið liðinn áratug - það var óneitanlega gaman (og krefjandi) að starfa að þeim fjölmörgu verkefnum sem við tókumst á í sameiningu - stofnuðum bráðalyflækningadeild, COVID göngudeild, sýklalyfjaeiningu og svo núna seinast bráðadagdeild,“ segir Ragnar í yfirlýsingu sinni um uppsögnina. Fréttin hefur verið uppfærð.
Landspítalinn Vistaskipti Heilbrigðismál Tengdar fréttir Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur lagt fram fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í henni kemur fram að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður árið 2027 og skuldahlutfall hins opinbera lækkað markvisst á tímabilinu. Meðal hagræðingaraðgerða sem hann boðar er fækkun stöðugilda hjá ríkinu um eitt prósent. 26. mars 2026 16:30 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira
Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur lagt fram fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í henni kemur fram að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður árið 2027 og skuldahlutfall hins opinbera lækkað markvisst á tímabilinu. Meðal hagræðingaraðgerða sem hann boðar er fækkun stöðugilda hjá ríkinu um eitt prósent. 26. mars 2026 16:30