Innlent

Lýst eftir manni á ní­ræðis­aldri

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Magnús er klæddur eins og á myndinni til vinstri.
Magnús er klæddur eins og á myndinni til vinstri. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Magnúsi Fr. Sigurðssyni, 86 ára, en síðast er vitað um ferðir Magnúsar þegar hann fór frá Landakoti á Túngötu í Reykjavík um tvöleytið í dag.

Magnús, sem er með alzheimer og er vistmaður á Landakoti, er klæddur í ljósbrúnar gallabuxur, gráa flíspeysu og brúna innskó eða mokkasíur.

Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Magnúsar, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×