Einum úr áhöfninni bjargað Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 3. apríl 2026 13:05 Herflugvélin er af gerðinni F-15E. Getty Íranski herinn skaut bandaríska herflugvél af gerðinni F-15 yfir miðhluta landsins í dag. Leit að áhöfninni stendur yfir en öðrum áhafnarmeðlimi af tveimur hefur verið bjargað.
Íranski fréttamiðillinn Tasnim birtir myndir af því sem virðist vera brak úr bandarískri herflugvél. Með fylgja þær upplýsingar að íranski herinn hafi skotið hana niður yfir miðhluta Íran. Uppfært kl. 15:30: Bandarískur embættismaður hefur staðfest við Wall Street Journal að bandarísk herþota af tegundinni F-15E hafi verið skotin niður í landhelgi Íran. Leit standi yfir af áhöfninni, sem telur tvo. Bandarískur embættismaður staðfestir í samtali við CBS að öðrum áhafnarmeðliminum hafi verið bjargað af bandarískum flugherliðum. Áður hafði Íransher haldið fram að flugvélin sem skotin var niður hafi verið af gerðinni F-35. Svo er ekki. Á írönskum miðlum er biðlað til íbúa að hafa augun opin fyrir bandarísku hermönnunum, þó ólíklegt teljist að þeir hafi lifað af. Stjórnvöld bjóða þeim sem hefur uppi á áhöfninni fundarlaun. تصاویر اختصاصی تسنیم از جنگنده آمریکایی ساقط شده توسط پدافند هوایی سپاه طاهری، خبرنگار و کارشناس نظامی تسنیم: بر اساس علائم درج شده روی دم این هواپیما، این جنگنده متعلق به اسکادرانهای فرماندهی اروپای ارتش آمریکا است که در جنگ علیه ایران از آن استفاده شده است#ایران_قوی pic.twitter.com/yUBvNcMZln— خبرگزاری تسنیم (@Tasnimnews_Fa) April 3, 2026 Í síðasta mánuði sendi Bandaríkjaher frá sér yfirlýsingu um að F-35 flugvél hefði nauðlent eftir að hafa sinnt verkefni í landhelgi Íran. Ástand áhafnarinnar væri stöðugt. Árásir Írana og Ísraela héldu áfram í dag en Íranir skutu meðal annars eldflaugum að skotmörkum í Ísrael og Barein í dag. Þá skaut herinn drónum að olíuhreinsunarstöð í Kúveit, með þeim afleiðingum að eldur kviknaði í henni, í dag. Á sama tíma tilkynnti Rauði hálfmáninn í Íran að dróni hefði hæft vöruhús í suðurhluta Íran í dag sem hýsi hjálpargögn og neyðarbíla. Ekki liggur fyrir hvaðan drónarnir komu.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Bandaríkin Tengdar fréttir Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Allir sex í áhöfn bandarískrar eldsneytisflutningaflugvélar sem brotlenti í Írak í gær eru látnir. Ástæður slyssins eru enn til rannsóknar en svo virðist sem tvær flugvélar af gerðinni KC-135 hafi skollið saman við dælingu eldsneytis í háloftunum yfir Írak í gær. Önnur hafi þá hrapað til jarðar en flugmönnum hinnar tókst að lenda í Ísrael. 13. mars 2026 10:44 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Sjá meira
Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Allir sex í áhöfn bandarískrar eldsneytisflutningaflugvélar sem brotlenti í Írak í gær eru látnir. Ástæður slyssins eru enn til rannsóknar en svo virðist sem tvær flugvélar af gerðinni KC-135 hafi skollið saman við dælingu eldsneytis í háloftunum yfir Írak í gær. Önnur hafi þá hrapað til jarðar en flugmönnum hinnar tókst að lenda í Ísrael. 13. mars 2026 10:44