Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir KR 4. sæti Bestu deildar karla í sumar.
deild karla KR Tengdar fréttir Besta-spá 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir ÍA 5. sæti Bestu deildar karla í sumar. 7. apríl 2026 10:00 Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir Val 6. sæti Bestu deildar karla í sumar. 6. apríl 2026 10:02 Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir Fram 7. sæti Bestu deildar karla í sumar. 5. apríl 2026 10:01 Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir KA 9. sæti Bestu deildar karla í sumar. 3. apríl 2026 10:01 Besta-spáin 2026: Mæta með læti Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir Þór 10. sæti Bestu deildar karla í sumar. 2. apríl 2026 10:03 Besta-spáin 2026: Ætla blása hrakspárnar aftur á haf út Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir ÍBV 11. sæti Bestu deildar karla í sumar. 1. apríl 2026 10:01 Besta-spáin 2026: Enn á skilorði Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir Keflavík 12. sæti Bestu deildar karla í sumar. 31. mars 2026 10:01 Mest lesið Rúllaði um gólfið í fanginu á dómaranum Körfubolti Færeyjar - Ísland | Stelpurnar þurfa sigur í Þórshöfn Handbolti 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Íslenski boltinn Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Enski boltinn Gaf heila eiginmannsins og hann var með CTE Sport Fjórtán ára þjóðhetja eftir að hann stal miða eins besta markvarðar heims Fótbolti Besta-spáin 2026: Enginn afsláttur Íslenski boltinn Metfjöldi norrænna kylfinga á Masters og Ísland gæti bæst í hópinn Golf Besta sætið: Davíð tuðaði yfir tuðverðlaununum Sport Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla Íslenski boltinn
Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir að venju fyrir um gengi liðanna í Bestu deild karla með árlegri spá sinni fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst með leik Íslandsmeistara Víkings og Breiðabliks föstudaginn 10. apríl. Íþróttadeild spáir KR 4. sæti Bestu deildarinnar í sumar og liðið stökkvi upp um sex sæti á milli tímabila. Stórsigur á Vestra, 1-5, í lokaumferð Bestu deildarinnar í fyrra kom í veg fyrir að KR félli niður í næstefstu deild í annað sinn í sögu félagsins. KR fékk mikið hrós fyrir hugrakka nálgun og skemmtilegan sóknarbolta framan af síðasta tímabili og var ósigrað í fyrstu sex deildarleikjum sínum. En síðan fór gamanið að kárna. Vesturbæjarliðið vann aðeins fjóra af næstu sextán leikjum sínum og botninum var líklega náð þegar KR tapaði 0-7 fyrir Víkingi í lokaumferð deildarkeppninnar. Það var stærsta tap KR á heimavelli í sögunni. KR-ingar fengu aðeins eitt stig í fyrstu þremur leikjunum í úrslitakeppninni, voru í fallsæti og Vesturbæingar voru farnir að óttast hið versta. KR vann hins vegar ÍBV, 2-1, í næstsíðustu umferðinni og var því með örlögin í sínum eigin höndum fyrir lokaumferðina. KR þurfti að sækja sigur á Ísafjörð til að halda sér uppi í Bestu deildinni. Það tókst og stuðningsmenn KR gátu varpað öndinni léttar. Ekkert hálfkák var á KR-ingum á síðasta tímabili og þeir brenndu skipin svo sannarlega eins og þjálfarinn Óskar Hrafn Þorvaldsson sagði ósjaldan. Sóknartölfræði KR var sannarlega ekki eins og hjá liði í fallbaráttu. KR skoraði þriðju flestu mörkin í Bestu deildinni (55), var með næstflest vænt mörk (53,1), ekkert lið var meira með boltann (64,9%) eða átti fleiri skot (418) og aðeins Breiðablik var með fleiri snertingar inni í vítateig mótherjanna. grafík/bjarki Varnarleikurinn var hins vegar ótraustur og á köflum glæfralegur. KR fékk á sig flest mörk allra (62) og hélt aðeins tvisvar sinnum hreinu. KR-ingar voru sérstaklega veikir fyrir í föstum leikatriðum og fengu á sig fjölmörg mörk eftir þau. Aftur á móti fékk KR á sig næstfæst skot allra liðanna í deildinni og hefði samkvæmt xG-fræðunum „bara“ átt að fá á sig 44,7 mörk en markvarslan var ekki góð síðasta sumar. Gríðarlegar breytingar urðu á leikmannahópi KR í fyrra, bæði fyrir mót og í sumarglugganum. Öllu minna hefur farið fyrir KR-ingum á félagaskiptamarkaðnum í vetur. Þeir sóttu tvo unga Ganverja og fengu svo Arnór Ingva Traustason frá Norrköping. Hann lék síðast á Íslandi 2013 en er nú kominn í svarthvítt og KR-ingar binda miklar vonir við að hann bindi liðið saman á miðsvæðinu. grafík/bjarki Eins og í fyrra litu KR-ingar vel út á undirbúningstímabilinu. Þeir rúlluðu yfir Stjörnumenn, 0-4, í undanúrslitum Lengjubikarsins en töpuðu fyrir Fylkismönnum í úrslitaleiknum. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 4-4 en Árbæingar höfðu betur í vítakeppni. KR sýndi svo sparihliðarnar á löngum köflum í 4-2 sigri á Val í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á annan í páskum. KR ætti að vera komið lengra í að tileinka sér leikstíl Óskars Hrafns og það er sannarlega jákvæð teikn á lofti í Vesturbænum. Minni breytingar á leikmannahópnum ættu líka að hjálpa við að byggja upp stöðugleika. grafík/bjarki KR-ingar gefa engan afslátt af sínum gildum og tefla áfram djarft. Óskar Hrafn frumsýndi hina kornungu Sigurð Breka Kárason og Alexander Rafn Pálmason í fyrra og þeir voru í stóru hlutverki í vetur. Sigurður fær væntanlega aukna ábyrgð í sumar sem og Alexander, meðan hans nýtur við en hann gengur í raðir danska liðsins Nordsjælland um mitt sumar. Fyrirliðinn Aron Sigurðarson verður áfram aðalmaður KR í sókninni en hann skoraði fjórtán mörk í fyrra, þar af sex með skotum fyrir utan vítateig. Eiður Gauti Sæbjörnsson skoraði einnig fjórtán mörk á sínu fyrsta heila tímabili í efstu deild. Óskar Hrafn Þorvaldsson tók við KR seinni hluta tímabilsins 2024.vísir/diego Arnar Freyr Ólafsson virðist vera orðinn markvörður númer eitt hjá KR. Þrátt fyrir að búa yfir talsverðri reynslu er hann að fara inn í krefjandi tímabil. Sömu sögu er að segja af Finni Tómasi Pálmasyni sem hefur ýmislegt að sanna eftir nokkur erfið ár. Vanalega er ekki fjölmennt í vörninni hjá KR og því mun mikið mæða á Finni og Arnar þarf að vinna nokkur stig fyrir Vesturbæjarliðið. Það verður áfram gaman að horfa á KR og fylgjast með vegferð liðsins. Fólk hefur sterkar skoðanir á henni og sitt sýnist hverjum um nálgun Vesturbæinga. En Besta deildin er ríkari fyrir vikið.
Besta-spá 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir ÍA 5. sæti Bestu deildar karla í sumar. 7. apríl 2026 10:00
Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir Val 6. sæti Bestu deildar karla í sumar. 6. apríl 2026 10:02
Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir Fram 7. sæti Bestu deildar karla í sumar. 5. apríl 2026 10:01
Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir KA 9. sæti Bestu deildar karla í sumar. 3. apríl 2026 10:01
Besta-spáin 2026: Mæta með læti Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir Þór 10. sæti Bestu deildar karla í sumar. 2. apríl 2026 10:03
Besta-spáin 2026: Ætla blása hrakspárnar aftur á haf út Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir ÍBV 11. sæti Bestu deildar karla í sumar. 1. apríl 2026 10:01
Besta-spáin 2026: Enn á skilorði Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir Keflavík 12. sæti Bestu deildar karla í sumar. 31. mars 2026 10:01