Virðisaukaskattur er frábært fyrirbæri! Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar 1. apríl 2026 15:02 Nú tek ég sénsinn á að einhverjir lesi bara fyrirsögnina og geti sér til um restina. Virðisaukaskattur er í grunninn eitt snjallasta tæki ríkisins til að fjármagna samfélagið. Hann mælir neyslu, dreifist breitt og gefur góða mynd af því hvar virði verður til í hagkerfinu. En eins og með flest góð tæki skiptir öllu máli hvernig það er notað. Undanfarin ár hefur virðisaukaskattur í ferðaþjónustu verið endalaust þrætuepli, sérstaklega þegar kemur að því hvort þjónustan eigi að falla undir 11% eða 24%. Rökin fyrir lægra þrepinu eru vel þekkt: ferðaþjónusta er útflutningsgrein, drifin áfram af erlendum gestum sem koma með gjaldeyri inn í landið. Í flestum útflutningsgreinum er virðisaukaskattur ekki lagður á, eða hann er endurgreiddur. Þar að auki eru helstu samkeppnislönd Íslands með svipað eða lægra skattþrep. En umræðan má ekki festast þar. Kjarni málsins snýst ekki um prósentur heldur um verðmætasköpun. Ferðaþjónusta er ekki hefðbundin atvinnugrein. Hún er samspil ólíkra aðila, flutninga, gistingar, afþreyingar, menningar, veitinga og fjölda stoðgreina sem saman skapa upplifun fyrir ferðamanninn. Í þessu samspili verður til virðisauki sem dreifist um allt samfélagið. Þegar ferðamaður kaupir aðgang að baðlóni er hann ekki bara að kaupa einn miða. Hann er að taka þátt í heilli virðiskeðju: flug, gisting, veitingar, samgöngur og aðra þjónustu. Áhrifin eru margföld. Þess vegna skiptir miklu meira máli hversu mikið er keypt en hvaða prósenta er lögð á hverja einingu. Hér kemur samkeppnishæfnin inn Ísland er nú þegar dýr áfangastaður. Það er ekki skoðun heldur staðreynd sem endurspeglast í alþjóðlegum samanburði og upplifun gesta. Á sama tíma hefur vöxtur ferðamanna staðið í stað frá 2017. Við erum ekki lengur í veldisvexti heldur í harðri alþjóðlegri samkeppni um athygli og veski ferðamannsins. Í slíkri stöðu skiptir verð miklu máli. Ef lykilafþreying eins og baðlón færist úr 11% í 24% virðisaukaskatt hækkar verðið beint til neytandans. Það hefur áhrif á kaupákvarðanir. Ekki endilega þannig að ferðamaðurinn hætti við að koma til Íslands heldur þannig að hann eyðir minna, velur færri upplifanir eða styttir dvölina. Þar með minnkar heildarvirðisaukinn og það er kjarninn. Ferðaþjónustan hefur á síðustu árum orðið ein mikilvægasta stoð íslensks efnahagslífs. Hún hefur skapað störf, byggt upp innviði og styrkt samfélög um land allt. Hún er ekki bara tekjulind fyrir ríkissjóð, hún er drifkraftur framþróunar og lífsgæða fyrir íbúa landsins. Þegar slík grein stendur frammi fyrir aukinni alþjóðlegri samkeppni þarf að spyrja stærri spurninga en einfaldlega hvernig hámarka megi skatttekjur til skamms tíma. Hagfræðin er í raun einföld: lægra skattþrep á verðmæta þjónustu getur aukið eftirspurn, aukið heildartekjur og þar með skilað meiri skatttekjum til lengri tíma. Hærra skattþrep getur haft öfug áhrif. Það sem gerir umræðuna flóknari er að ferðaþjónusta snertir svo marga. Hún tengir saman fyrirtæki, sveitarfélög, ríki, fjármálakerfi, menntastofnanir og samfélagið í heild. Hún er klasi, vistkerfi, þar sem heildin er sterkari en hver eining fyrir sig. Þegar ákvarðanir eru teknar um skattlagningu eins hluta klasans hafa þær áhrif langt út fyrir þann hluta. Horfum á stóru myndina Við stöndum á tímamótum þar sem ferðaþjónustan er komin í mun harðara samkeppnisumhverfi en áður og okkur verður að bera gæfa til að hugsa til lengri tíma. Sjálfbær uppbygging og þróun krefst hugrekkis í núinu en skilar okkur verðmætum til framtíðar. Þar skiptir máli að skapa greininni hagfelld skilyrði til að ná að auka samkeppnishæfni og arðsemi. Það er ekkert sem segir að 11% sé „rétt“ prósenta til eilífðar. En það er heldur ekkert sem segir að hækkun sé sjálfkrafa skynsamleg. Spurningin sem við eigum að spyrja er einföld: Viljum við hámarka skatt á hvern seldan miða, eða hámarka verðmæti sem verða til í hagkerfinu? Virðisaukaskattur er frábært fyrirbæri. En aðeins ef við notum hann með skynsemi. Höfundur er framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Mest lesið Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson Skoðun Skoðun Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar