Handbolti

Danir að þvælast fyrir við­ræðum HSÍ við Snorra og Arnór? „Styttist í fréttir“

Aron Guðmundsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason hafa myndað gott teymi með íslenska landsliðinu en nú eru á sveimi sögusagnir um að landsliðsþjálfari Danmerkur vilji sundra þeim.
Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason hafa myndað gott teymi með íslenska landsliðinu en nú eru á sveimi sögusagnir um að landsliðsþjálfari Danmerkur vilji sundra þeim. Vísir/Samsett

Nicola­j Jacob­sen, lands­liðsþjálfari Dan­merkur í hand­bolta, er sagður vilja fá Arnór Atla­son, að­stoðarþjálfara Ís­lenska karla­lands­liðsins sem sína hægri hönd hjá danska lands­liðinu. For­maður HSÍ segir viðræður við bæði Arnór sem og Snorra Stein Guðjóns­son, lands­liðsþjálfara í fullum gangi. Það styttist í tíðindi.

Sagt var frá því á vef Hand­kastsins í gær að Nicola­j Jacob­sen, lands­liðsþjálfari danska karla­lands­liðsins í hand­bolta hefði áhuga á því að fá Arnór Atla­son, að­stoðar­lands­liðsþjálfara ís­lenska karla­lands­liðs í hand­bolta, sem að­stoðarþjálfara sinn.

Henrik Kron­borg, sem hefur verið hægri hönd Jacob­sen með danska lands­liðið, hefur ákveðið að hætta sem að­stoðarþjálfari danska lands­liðsins og því eru Danir að leita að nýjum að­stoðar­lands­liðsþjálfara.

Svo vill til að núverandi samningur Arnórs Atla­sonar við HSÍ er að renna sitt skeið og eru bæði hann og Snorri Steinn Guðjóns­son, lands­liðsþjálfari, í viðræðum við HSÍ um nýjan samning.

Heimildir Hand­kastsins herma að viðræður HSÍ við Snorra Stein séu að dragast á langinn vegna þess að Snorri hefur lagt á það áherslu á að halda Arnóri Atla­syni áfram sem að­stoðarþjálfara liðsins. Sam­hliða starfinu með ís­lenska lands­liðinu er Arnór þjálfari danska liðsins TTH Hol­stebro og þekkir vel til í Dan­mörku.

„Viljum bæði Snorra og Arnór“

Jón Halldórs­son, for­maður HSÍ, segir í sam­tali við Vísi að samningaviðræður séu í fullum gangi.

„Við erum á kafi á samninga­viðræðum,“ segir Jón í sam­tali við Vísi. „Við viljum bæði Snorra og Arnór. Það styttist í fréttir af þessu.“

Jón Halldórsson er formaður HSÍVísir/Sigurjón

For­maðurinn er mjög bjartsýnn á að halda þeim báðum.

„Það er bara skýrt tak­mark, það er það sem við viljum.“

Að­spurður hvort viðræðurnar væru að ganga sam­kvæmt tímaáætlun sam­bandsins sagði Jón svo vera.

„Við erum bara í góðu sam­tali við um­boðs­menn þeirra. Þetta er allt á réttri leið.“

Með kandídata í huga

Í sam­tali við danska miðilinn TV 2 segist Nicola­j Jacob­sen vera með nokkur nöfn í huga sem næsta að­stoðarþjálfara danska lands­liðsins. Hann tekur mikinn þátt í ráðningar­ferlinu hjá danska hand­knatt­leiks­sam­bandinu.

„Fyrir mitt leiti er það mikilvægt að næsti að­stoðar­lands­liðsþjálfari sé ein­hver sem ég næ persónu­lega að tengja vel við sjálfur. Ég er með nokkra mögu­lega arf­taka Kron­borg í huga. Nú er bara spurningin hvort við fáum ein­hvern til að taka stökkið til okkar,“ sagði Jacob­sen við TV 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×