„Finnst vanta framherja“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2026 11:01 Talsverðar breytingar hafa orðið á liði FH sem endaði í 6. sæti Bestu deildar karla í fyrra. vísir/anton Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur Stúkunnar, hefur áhyggjur af breiddinni hjá liði FH og segir að skörð Björns Daníels Sverrissonar og Sigurðar Bjarts Hallssonar í sóknarleiknum verði vandfyllt.
FH er spáð 8. sæti Bestu deildar karla í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Sýnar. Líkt og sumarið 2024 endaði FH í 6. sæti Bestu deildarinnar í fyrra. Eftir tímabilið skiptu FH-ingar um þjálfara. Samningur Heimis Guðjónssonar var ekki endurnýjaður og við starfi hans tók Jóhannes Karl Guðjónsson. „Það er erfitt að rýna í FH-liðið eins og þú kemur inn á. Það eru miklar breytingar bæði í þjálfaranum og í hópnum líka. Mikil reynsla er farin úr liðinu. Það er áhugavert að Böðvar [Böðvarsson] var látinn fara og það er svo sem nóg búið að fara yfir það. En svo horfir maður líka á mörk. Það eru 24 mörk farin úr liðinu frá því í fyrra í Birni Daníel og Sigurði Bjarti,“ sagði Albert er hann var beðinn um að rýna í lið FH. Klippa: Besta-spáin 2026 - 8. sæti „Þetta verður mjög forvitnilegt tímabil í Kaplakrika en spennandi á sama tíma. Manni finnst fyrstu ellefu líta ágætlega út hjá þeim en maður hefur áhyggjur af breiddinni og þetta er ungt lið. Þeir eru búnir að tala um að yngja upp hópinn þannig að það má búast við að það verði óstöðugleiki og sérstaklega hefur maður kannski áhyggjur af FH-liðinu ef þetta byrjar illa. Af því að mögulega vantar svona rödd til þess að róa leikmenn inni í klefa.“ Vantar upp á breiddina Albert segir að FH-ingar þurfi að styrkja sig meira, sérstaklega fram á við. „Já, mér finnst vanta framherja eins og ég kom inn á. Þeir fá inn Sverri Pál [Hjaltested]. Hann var reyndar fínn í fyrra þegar hann þurfti að stíga upp í ÍBV-liðinu. Hann er yfirleitt að tikka í kringum sex mörk. Við vorum með sextán mörk í Sigurði Bjarti í fyrra þannig að mér finnst enn vanta menn fram á við; eina níu sem þeir geta treyst á,“ sagði Albert. „Svo er það breiddin sem manni finnst svona vanta upp á hjá FH-liðinu. Ef maður horfir á fyrstu ellefu er þetta alveg sterkt lið. Svo er spurning með hafsentinn sem þeir sóttu að utan [Tobias Carlsson], hvort hann sé heill, og þeir telja sig loksins komnir með markmann [Jökul Andrésson] sem þeir geta treyst á og það er búið að vanta upp á hjá FH síðustu ár.“ FH sækir ÍBV heim í 1. umferð Bestu deildarinnar klukkan 13:00 sunnudaginn 12. apríl.
Besta deild karla FH Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Þykja Alpine liðið vera of dýrt Formúla 1 Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Sjá meira