Engin þjóðarsátt án skýrra aðgerða Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 31. mars 2026 12:31 Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ segir að stjórnvöld þurfi að hafa frumkvæði að því að kalla saman aðila vinnumarkaðarins til að ræða og finna saman lausn á verðbólgu og neikvæðum efnahagshorfum. Fyrri fundir hafi þó skilað litlu. Vísir/Sara Forseti ASÍ segir brýnt að stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins komi sér saman um aðgerðir til að ná tökum á neikvæðri þróun í efnahagslífinu. Ekki sé hægt að ræða um þjóðarsátt fyrr en þær komi fram. Ríkisstjórnin þurfi að hafa frumkvæði að því að kalla fólk saman. Fyrri fundir hafi þó reynst árangurslausir.
Ekkert bólar á aðgerðum ríkisstjórnarinnar gegn verðbólgu sem fjármálaráðherra boðaði að væru í vændum í lok febrúar og kvaðst þá eiga fundi með aðilum vinnumarkaðarins nokkrum dögum síðar. Verðbólga jókst í mars og er nú 5,4 prósent. Þá hefur eldsneytisverð hækkað mikið síðustu vikur vegna átaka í Mið-Austurlöndum. Framkvæmdastjóri FIB sagði í fréttum Bylgjunnar í gær eðlilegt að stjórnvöld mæti hækkunum á olíuverði með því að lækka álögur á eldsneyti tímabundið líkt og aðrar þjóðir hafi gert undanfarið. Þá þurfi að veita olíufélögunum aukið aðhald. Þá sagði framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins i í Silfrinu á RÚV í gær að fullt tilefni væri til að skapa breytt samtal í efnahagsmálum og koma á þjóðarsátt eins og gerð var árið 1990. Í þjóðarsáttinni þá voru kjarasamningar milli verkalýðshreyfingar, atvinnurekenda og ríkisins undirritaðir. Þar var samið um aðgerðir sem líklegar væru til þess að slá niður verðbólguna. Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ tekur undir þessar hugmyndir en fyrst verði að ákveða í sameiningu hvaða aðgerðir eigi að ráðast í. „Það eru margir að kalla eftir einhvers konar sátt milli aðila á vinnumarkaði og stjórnvalda. Við höfum lýst yfir áhuga á að aðilar ræði saman og þátti niður og skoði hvað sé að gerast í samfélaginu. Þar verði kannað hvaða þættir valdi verðbólgunni. Við viljum gera mjög vandaða úttekt á því hvernig ástandið er núna. Í framhaldinu verði svo ákveðið til hvaða aðgerða þarf að ráðast í,“ segir Finnbjörn. Engin niðurstaða frá fyrri fundum Hann segir að ríkisstjórnin hafi átt fundi með verkalýðshreyfingunni vegna málsins en það hafi lítið komið út úr þeim. „Við höfum átt spjall við stjórnvöld en höfum ekki komist að niðurstöðu um nokkurn skapaðan hlut,“ segir hann. Hann telur hins vegar að stjórnvöld þurfi að stýra næstu skrefum. „Eðlilegast væri ríkisstjórnin kallaði saman aðila vinnumarkaðarins vegna þess að það er ríkisstjórnin sem ábyrgð á efnahagsmálunum í samfélaginu,“ segir Finnbjörn.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Verðlag Alþingi ASÍ Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira