Ítalskur hermaður fylgdist með æfingu Bosníu fyrir umspilsleikinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. mars 2026 12:31 Hermaðurinn áhugasami sem fylgdist með æfingu Bosníu fyrir umspilsleikinn gegn Ítalíu. Bosníumenn sökuðu Ítali um að senda njósnara til að fylgjast með æfingu þeirra fyrir leik liðanna í umspili um sæti á HM. Um misskilning var hins vegar að ræða.
Fyrstu fimmtán mínúturnar af æfingu bosníska liðsins í Butmir voru opnar fyrir fjölmiðla. Maður einn fylgdist þó lengur með æfingunni og myndaði hana. Honum var á endanum vísað í burtu af svæðinu. Bosnískir fjölmiðlar töldu að Ítalir hefðu sent manninn til að njósna um bosníska liðið fyrir leikinn mikilvæga í Zenica í kvöld. Svo reyndist þó ekki vera því maðurinn með myndavélina er ítalskur hermaður sem er staddur í Bosníu vegna verkefnis á vegum Evrópusambandsins, EUFOR. Bosníumenn kvörtuðu til EUFOR sem staðfesti að ítalska knattspyrnusambandið hefði ekkert vitað af hermanninum. Hann var einfaldlega í Butmir fyrir tilviljun og ákvað að mynda æfinguna af einskærri forvitni. Ítalir tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum í umspilinu með 2-0 sigri á Norður-Írum á fimmtudaginn. Bosnía vann hins vegar Wales í vítaspyrnukeppni sama dag. Ítalska liðið freistar þess nú að komast á HM eftir að hafa misst af mótunum í Rússlandi 2018 og Katar 2022. Ítalía varð heimsmeistari 2006 en komst ekki upp úr riðlakeppninni á HM 2010 og 2014. Liðið sem vinnur leikinn í Zenica lendir í riðli með Kanada, Katar og Sviss á HM.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Íslenski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Sjá meira