Baðlónabullið - stjórnvöld hlaupast undan ábyrgð Pétur Óskarsson skrifar 31. mars 2026 10:45 Eitt af því sem hefur fengið aukna athygli um allan heim síðustu misserin er viðnámsþróttur samfélaga. Þar er átt við viðnámsþrótt atvinnulífs, heimila og hins opinbera til þess að bregðast við þegar áföll ganga yfir. Rautt flagg Seðlabankans um stöðu ferðaþjónustufyrirtækja Í síðustu viku flaggaði Seðlabanki Íslands því í riti sínu um fjármálastöðugleika að þrátt fyrir að viðnámsþróttur íslensks atvinnulífs væri almennt góður þá væru ferðaþjónustufyrirtækin ekki eins vel stæð og félög í öðrum greinum. Það fylgir því áhætta að stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar og ein af meginstoðum velferðar og lífsgæða í þessu landi standi fjárhagslega á brauðfótum. Við sem störfum í greininni þekkjum þessa staðreynd vel og sjáum nú afleiðingar af skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu síðustu ár koma í ljós. Ferðaþjónustunni hefur ekki tekist að byggja upp nægilegt eigið fé til þess að standast alþjóðlegan samanburð. Þannig er eiginfjárhlutfall fyrirtækja í gisti- og veitingarekstri um 24% á sama tíma og meðaltalið er 41% á hinum Norðurlöndunum. Hjá fyrirtækjum í samgöngum- og flutningum mælist hlutfallið 29% á Íslandi en er 44% að meðaltali í nágrannalöndum okkar. Það sama má segja um veltu- og lausafjárhlutföll í ferðaþjónustunni, þau standast heldur ekki samanburð. Þessar staðreyndir ættu að vera rautt flagg fyrir ábyrg stjórnvöld sem bera mesta ábyrgð á þeim þáttum rekstrarumhverfisins sem hægt er að hafa áhrif á. Óábyrg fjármálaáætlun Það mátti því búast við því að í nýkynntri fjármálaáætlun ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins til ársins 2031 væri að finna ábyrgar aðgerðir og viðbrögð við þessari alvarlegu stöðu, með svipuðum hætti og brugðist hefur verið við m.a. í Þýskalandi og Írlandi síðustu misseri. Þar hefur verið dregið markvisst úr álögum á greinar ferðaþjónustu til þess bæta samkeppnishæfni þeirra. Það kom því eins og blaut tuska í andlitið á ferðaþjónustunni í vikunni þegar fjármálaráðherra kynnti fjármálaáætlunina að þar eru engar aðgerðir á teikniborðinu til þess að bæta hag ferðaþjónustunnar. Þvert á móti stendur til að þyngja rekstur eins dýrmætasta sprota greinarinnar, baðlónanna. Ábyrgðarleysi og skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart raunveruleikanum virðast engin takmörk sett. Baðlón eru lykilinnviðir í ferðaþjónustu Baðlónamenningin er ein af fáum þeim vörum sem við Íslendingar getum með sanni kallað okkar eigin. Þessi vara eru eitt af skýrustu samkeppnisforskotum Íslands í alþjóðlegri samkeppni við aðra áfangastaði. Bláa lónið, Jarðböðin við Mývatn, Vök á Egilsstöðum, Sjóböðin í Húsavík, Hvammsvík í Hvalfirði, Skógarböðin á Akureyri, þetta eru ekki bara baðstaðir sem gestir og heimamenn njóta. Þetta eru lykilinnviðir í ferðaþjónustu landsbyggðarinnar, þar sem tekjur af ferðamönnum skapa störf og lífsviðurværi í sveitarfélögum með takmörkuð önnur atvinnutækifæri. Það er ævintýralegur misskilningur að trúa því að nú sé tækifæri til þess að sækja að þessum fyrirtækjum sem flest hafa starfað í stuttan tíma eða eru jafnvel enn á teikniborðinu. Íslensk ferðaþjónusta gerir þá kröfu að ríkisstjórnin dragi þessa tillögu til baka. Ekki vegna þess að við séum andvíg því að greinin greiði sanngjarnt gjald fyrir notkun á sameiginlegum gæðum þjóðarinnar, því við höfum sjálf boðið fram uppbyggilegt samtal um náttúru- og innviðagjald og erum tilbúin til að halda því samtali áfram. En til þess þurfum við að geta treyst því að markmið ríkisstjórnarinnar sé að við sköpum sameiginlega stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi þar sem fjárfestingar geta skilað sér og greinin byggt upp ásættanlegan viðnámsþrótt. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pétur Óskarsson Ferðaþjónusta Sundlaugar og baðlón Mest lesið Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar