SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar Árni Sæberg skrifar 30. mars 2026 15:40 Samskip höfðu betur gegn Samkeppniseftirlitinu en eftirlitið hefur kært úrskurðinn. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað máli Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum frá dómi á þeim grundvelli að stefna í málinu fæli í sér skriflegan málflutning. Stefnan var heilar 135 blaðsíður, sem er um fimmföld hámarkslengd stefna, sem reglur Dómstólasýslunnar kveða á um. Samkeppniseftirlitið telur að nauðsynlegt hafi verið að reifa málið ítarlega í stefnu og hefur því ákveðið að kæra frávísunarúrskurðinn til Landsréttar.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis var kveðinn upp í dag. Í honum segir að Samkeppniseftirlitið hafi höfðað málið til þess að fá tvö tiltekin ákvæði í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá árinu 2025 ógilt. Með þeim var Samskipum gert að greiða annars vegar 2,3 milljarða króna og hins vegar 100 milljónir króna vegna brota á samkeppnislögum. Með úrskurðinum voru sektir Samskipa lækkaðar úr fjórum milljörðum og 200 milljónum króna, miðað við sektarákvarðanir Samkeppniseftirlitsins. Engin fordæmi fyrir 135 blaðsíðum Í úrskurðinum segir að Samskip hafi byggt frávísunarkröfu sína á því að stefna málsins sé ekki í samræmi við þær kröfur sem gerðar séu lögum um meðferð einkamála. Þá sé stefnan í brýnni andstöðu við þá meginreglu réttarfars að flutningur málsins skuli vera munnlegur. Samskip telji framsetningu í stefnu og umfang hins skriflega málflutnings slíkt að óhjákvæmilegt sé að vísa málinu frá dómi. Ljóst sé að jafnræði aðila væri verulega raskað ef réttum reglum yrði fylgt við greinargerðarskrif í málinu. Það geti hins vegar engan veginn samrýmst tilvitnuðum réttarfarsreglum að haga greinargerðarskrifum til samræmis við stefnu. Það athugist einnig að Samkeppniseftirlitið hafi lagt fram gríðarlegan fjölda skjala. Merkt dómskjöl séu hins vegar einungis 44 talsins. Mörg þeirra innihaldi hins vegar fjölda gagna án þess að séð verði að þau séu nánar tilgreind í skjalaskrá eða í tilvísunum í stefnu. Í stefnu sé gerð grein fyrir málsatvikum einum og sér á 35 blaðsíðum. Finna megi fjölmörg dæmi þess í réttarframkvæmd að gerðar hafi verið athugasemdir við skriflegan málflutning í tilvikum þar sem stefnur séu slíkar að umfangi eða styttri. Stefndu telji að þess finnist hins vegar engin dæmi í framkvæmd að málsatvikum, málsástæðum og lagarökum séu gerð skil á 135 blaðsíðum. Lengdin ein og sér dugði en fleiri annmarkar voru á stefnunni Í niðurstöðukafla dómsins segir að það sé mat dómsins að lýsing Samkeppniseftirlitsins feli heilt á litið í sér óhóflegan skriflegan málflutning í brýnni andstöðu við bæði meginreglu einkamálaréttarfars um munnlega málsmeðferð og ákvæði einkamálalaga. „Með þessu er ekki sagt að stefna í málinu gæti ekki verið lengri en almennt gengur og gerist, enda er um viðamikið mál að ræða, heldur að stefnandi hefur að þessu leyti farið út fyrir öll mörk. Þessir annmarkar myndu einir og sér leiða til þess að vísa bæri málinu frá dómi án kröfu, en meira kemur hér til eins og rakið er hér á eftir.“ Í úrskurðinum segir meðal annars að öll skjalaframlagning Samkeppniseftirlitsins sé háð verulegum annmörkum og að framsetning málatilbúnaðar að öðru leyti sé haldin öðrum vanköntum. „Mörg flókin og viðamikil dómsmál hefur rekið á fjörur íslenskra dómstóla. Slíkum málum hefur heldur fjölgað í seinni tíð. Ef þau mál yrðu almennt rekin á þann hátt sem stefnandi hefur kosið að gera, sbr. alvarlegar athugasemdir dómsins hér að framan, yrði e-lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 [um meðferð einkamála] ásamt meginreglum einkamálaréttarfars um munnlega málsmeðferð og hraða málsmeðferð í reynd varpað fyrir róða.“ Ákvörðunin rökstudd á þrjú þúsund blaðsíðum Samkeppniseftirlitið hefur birt umfjöllun um úrskurðinn á vef sínum. Þar segir að rannsókn Samkeppniseftirlitsins á ólögmætu samráði fyrirtækjanna hafi verið fordæmalaus að umfangi, en hún hafi tekið til allra helstu sviða í starfsemi fyrirtækjanna, það er sjóflutninga, landflutninga og flutningsmiðlunar. Rannsóknin hafi náð yfir háttsemi fyrirtækjanna frá 2008 til og með 2013 en jafnframt til atvika fyrir það tímabil og falið í sér skoðun á gríðarlegu magni gagna. „Endurspeglast það í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins þar sem niðurstöður um ólögmætt samráð fyrirtækjanna eru rökstuddar á yfir þrjú þúsund blaðsíðum.“ Með málsókn sinni leitist Samkeppniseftirlitið eftir því að fá stjórnvaldssekt Samskipa færða í fyrra horf. Ástæða þessa sé að Samkeppniseftirlitið telji að sektin sem áfrýjunarnefnd ákvað sé ekki í samræmi við hin alvarlegu og langvarandi brot Samskipa. Í úrskurði héraðsdóms sé vísað til reglna dómstólasýslunnar um hámarkslengd stefnu og greinargerða í einkamálum o.fl. og tekið fram að reglurnar feli í sér viðmið sem viðbúið sé að lögmenn og dómarar líti til. Í úrskurðinum sé fundið að því að stefna Samkeppnisetirlitsins í málinu sé 135 blaðsíður að lengd og talið að hún feli í sér skriflegan málflutning í andstöðu við bæði meginreglu einkamálaréttarfars um munnlega málsmeðferð og ákvæði laga um meðferð einkamála. Dómurinn telji að svo löng stefna geri Samskipum nær ómögulegt að skila greinargerð sem uppfylli skilyrði laganna. „Samkeppniseftirlitið telur að sakarefni málsins sé fordæmalaust að umfangi og að nauðsynlegt hafi verið að reifa málið með fullnægjandi hætti í stefnu svo það teldist ekki vanreifað. Samkeppniseftirlitð hyggst því kæra úrskurð héraðsdóms til Landsréttar.“
Samkeppnismál Dómsmál Ólöglegt samráð Eimskips og Samskipa Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira