Gular veðurviðvaranir og vegir á óvissustigi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. mars 2026 14:12 Loka þurfti Reykjanesbrautinni um daginn. Vísir/Vilhelm Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir víða um land síðdegis í dag. Fjöldi vega er á óvissustigi og geta því lokað með skömmum fyrirvara, þar á meðal Reykjanesbrautin og Holtavörðuheiðin.
Klukkan fimm fara gular veðurviðvaranir í gildi á Suðurlandi og Faxaflóa. Klukkutíma síðar verða einnig gular viðvaranir á höfuðborgarsvæðinu, Suðausturlandi og í Breiðafirði. Klukkan sex bætast Vestfirðir í hópinn og hálendið og Norðurland vestra klukkan átta. Síðustu viðvararnirnar falla úr gildi klukkan fimm aðfaranótt sunnudags. Fjöldi vega víðs vegar um land eru óvissustigi vegna veðursins. Frá klukkan fjögur eru vegirnir um Hellisheiði, Reykjanesbraut, Þrengsli, Mosfelslheiði, Suðurstrandavegur, Grindavíkurvegur, Sandgerði, Gemlufalsheiði, Þingvöllum og Lyngdalsheiði á óvissustigi. Klukkan fimm síðdegis verða einnig Kjalarnes, Hafnarfjall, Holtavörðuheiði, Brattabrekka, Mikildalur, Hálfdán og Kleifaheiði á óvissustigi. Vegirnir um Vatnsskarð og Þverárfjall bætast í hópinn klukkustund síðar. Hægt er að fylgjast með vegalokunum á umferðin.is. Í tilkynningu frá aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðinsins segir að viðbúið er að færð spillist á meðan veðrið gengur yfir og því hafi vegir til og frá höfuðborgarsvæðinu verið settir á óvissustig. „Fólki sem þarf að vera á ferðinni er því góðfúslega bent á að gera slíkt áður en veðrið skellur á eða eftir að því slotar. Það mun auðvelda mjög störf allra viðbragðsaðila ef eftir því er farið. Minnt er á að færð innan höfuðborgarsvæðisins getur sömuleiðis spillst, ekki síst í efri byggðum eins og við þekkjum,“ segir í tilkynningunni. „Töluverð snjókoma fylgir veðrinu og því ættu ökumenn að hugsa sig vel um áður en farið er af stað, en aðstæður gætu orðið þannig að slíkt sé aðeins á færi þeirra sem eru á vel búnum bílum til vetraraksturs.“
Veður Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira