Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Freyja Þórisdóttir skrifar 25. mars 2026 23:02 Fjöldi nýrra nafna voru samþykkt af úrskurðarnefnd mannanafnanefndar nú í vetur. Úrskurðarnefnd mannanafnanefndar samþykkti í vetur fjölda beiðna vegna nýrra nafna en hafnaði einnig beiðnum á borð við þá sem tónlistar- og myndlistamaðurinn Curver Thoroddsen sendi henni. Nefndin birti úrskurð í mars þar sem fram kom að eiginnafninu Curver yrði ekki bætt við mannanafnaskrá sökum þess að stafurinn „C“ finnist hvergi í íslenska stafrófinu.
Þann 16. mars var gefinn út listi þeirra nafna sem úrskurðarnefnd mannanafnanefndar ýmist samþykkti eða hafnaði. Fjöldi föður- og móðurkenninga var samþykktur en þar á meðal má nefna föðurkenninguna Artúrsdóttir og móðurkenninguna Agnesardóttir. Ný afbrigði vinsælla nafna Curver Thoroddsen, tónlistar- og myndlistamaður, fagnaði stórafmæli í febrúar.Skjáskot/Facebook Nokkur nöfn voru færð á mannanafnaskrá sem ritháttarafbrigði nafna sem eru þegar í mannanafnaskrá og sum hver ansi algeng. Til dæmis má nú heita Hannah, Reinholdt, Mio, Aksel og Rikard. Líkt og gefur auga leið er Hannah afbrigði af nafninu Hanna og Aksel afbrigði af Axel og þar fram eftir götunum. Dæmi um eiginnöfn sem voru samþykkt nú í mars eru Híramía, Pia, Iðja, Amaníta og Arin. Beiðni um eiginnafnið Curver (kk.) var hafnað en Curver Thorddsen, tónlistar- og myndlistarmaður, segir úrskurðinn ekki beint hafa komið sér á óvart. Óvenjulegur uppruni nafnsins „Ég sótti fyrst um að heita Curver fyrir rúmum 20 árum, var þá þrítugur og hélt stóra myndlistarsýningu. Þá keypti ég líka heilsíðuauglýsingu þar sem stóð „frá og með deginum ætla ég að heita Curver Thoroddsen og bið ég þjóðina og aðra að virða þá ákvörðun,“ eða eitthvað í þá áttina,“ segir Curver í samtali við blaðamann fréttastofunnar. Curver ruslatunnur voru vinsælar á áttunda áratug síðustu aldar. Nokkur eintök, sem virðast á öllu vera upprunaleg, eru föl á netsölusíðum svo sem Etsy. Hann nefnir að á þeim tíma hafa skapast umræður út frá auglýsingunni meðal annarss en uppruni nafnsins er vægast sagt óvenjulegur. „Ég tók nafnið upp þegar ég var ungur og í hljómsveit, þetta var nafn af vinsælum ruslatunnum á þeim tíma. Svo varð hljómsveitin sem ég spilaði í eiginlega eins manns hljómsveit og fólk byrjaði að þekkja mig sem Curver,“ segir Curver Thoroddsen. Þann 1. febrúar síðastliðinn fagnaði Curver fimmtíu ára afmælinu sínu með svokallaðri yfirlitssýningu. Þá sótti hann einnig aftur um að fá nafnið sitt samþykkt sem eiginnafn en því var aftur hafnað á grundvelli þess að upphafsstafur nafnsins sé ekki í íslenska stafrófinu.
Mannanöfn Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fleiri fréttir Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Sjá meira