Innlent

Bíll í ljósum logum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Bíll í ljósum logum.
Bíll í ljósum logum. Aðsend

Sendiferðabíll stóð í ljósum logum í Mosfellsbæ. Slökkvistarfi er lokið.

„Það fór dælubíll á staðinn og slökkti eld í bíl,“ segir Birkir Árnason, varðstjóri í aðgerðastjórn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.

Tilkynning barst klukkan hálf eitt. Slökkvistarfi á vettvangi er lokið en bíllinn er ekki ökuhæfur svo flytja þarf hann á brott.

Enginn slasaðist að sögn Birkis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×