Sýnileiki öryggisgæslu aukinn eftir hópaárás Birgir Olgeirsson skrifar 24. mars 2026 11:24 Bílakjallari Höfðatorgs þar sem sýnileiki öryggisgæslu hefur verið aukinn í kjölfar hópaárásar í síðustu viku. Vilhelm Sýnileiki öryggisgæslu í bílakjallara Höfðatorgs hefur verið aukinn eftir hópárás sem átti sér stað í kjallaranum aðfaranótt 17. mars.
Á þriðja tug manna tókust þar á, meðal annars með eggvopni og kylfum, auk þess sem ekið var á einn. Samkvæmt heimildum fréttastofu var um uppgjör í undirheimum að ræða. Árásin er meðal annars rannsökuð sem tilraun til manndráps og hafa alls átta verið handteknir í tengslum við rannsóknina. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru flestir þeirra sem voru viðloðnir þessi átök erlendir ríkisborgarar og hluti þeirra dvalið stund á Íslandi. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu, sagði í samtali við fréttastofu í gær að brotaþolar væru þrír og einn þeirra Íslendingur sem þurfti að dvelja á gjörgæslu í nokkra daga. Fjöldi sækir Höfðatorg á hverjum degi og hefur þessi árás vakið eftirtekt. Þeir sem hafa átt erindi þangað hafa veitt því athygli að öryggisgæsla í bílakjallaranum er orðin sýnilegri á síðustu dögum. Innkeyrslan að Bílakjallara Höfðatorgs. Vilhelm Höfðatorg er í eigu Heima en Arnar Már Kristinsson er þar forstöðumaður fasteignarekstrar. Hann segir að bílakjallari Höfðatorgs sé í eigu nokkurra aðila sem hafa haft með sér samstarf um öryggi í formi eftirlitsmyndavéla og öryggisgæslu.Mönnuð öryggisgæsla á svæðinu hafi ávallt verið í forgrunni og vaktferðum hefur verið sinnt í lengri tíma, bæði yfir daginn og nóttina.„Við höfum nýlega aukið sýnileika gæslunnar til muna og fleiri vaktferðum hefur verið bætt við yfir sólarhringinn. Breytingin er liður í að tryggja öryggi aðila sem sækja þjónustu bílakjallarans hvort sem það eru starfsmenn á reitnum, íbúar, gestir eða starfsfólk,” segir Arnar Már í svari til fréttastofu.
Lögreglumál Reykjavík Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Tengdar fréttir Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi er rannsökuð sem tilraun til manndráps en þar var eggvopni og kylfum beitt ásamt því að ekið var á einn brotaþola. Samkvæmt heimildum fréttastofu var um uppgjör í undirheimunum að ræða en tuttugu til þrjátíu manns komu saman í bílastæðahúsinu. 18. mars 2026 21:01 Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Sex ára stúlka setti heimsmet Erlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við Sjá meira
Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi er rannsökuð sem tilraun til manndráps en þar var eggvopni og kylfum beitt ásamt því að ekið var á einn brotaþola. Samkvæmt heimildum fréttastofu var um uppgjör í undirheimunum að ræða en tuttugu til þrjátíu manns komu saman í bílastæðahúsinu. 18. mars 2026 21:01