Verðtryggður Seðlabankastjóri Jón Frímann Jónsson skrifar 24. mars 2026 08:45 Ég man ekki árið sem þetta kom fram í fréttum en þetta var fyrir nokkrum árum. Þá sagði Seðlabankastjóri að lántakendur ættu helst að færa sig yfir í verðtryggð lán frá óverðtryggðum lánum. Þar sem þau væru hagstæðari. Þetta er að mínu áliti ein versta og stærsta rangfærsla sem hefur komið fram í fjármálum á Íslandi í lengri tíma og á þeim lista er nóg af taka. Verðtrygging er slæm í hvaða hagkerfi sem er. Verðtrygging er einstaklega slæm í íslensku hagkerfi. Ástæðan er mjög einföld. Mynt hagkerfið er lítið og veikt, auk þess sem hagkerfið á Íslandi er mjög lítið og hefur ekki mikið þol gagnvart áföllum og miklum sveiflum. Hvort sem þær sveiflur eru utanaðkomandi eða innanlands. Ástæða þess að verðtryggin er slæm er sú að verðtrygging framleiðir peninga sem eiga ekki að vera í hagkerfinu. Verðtryggingin gerir einnig allt dýrara en það þarf að vera. Þar sem verðtryggð lán hækka kostnað allra, alveg óháð því hvort að viðkomandi er með verðtryggt lán sjálfur eða ekki með verðtryggt lán. Þetta fer um allt hagkerfið og eyðileggur út frá sér. Hlutverk verðbólgu í hagkerfi er að eyða út peningum sem eiga ekki að vera í hagkerfinu. Það er peningum sem tengjast framleiðni og eiga að vera í hagkerfinu. Peningar eins og þeir sem tengjast verðtryggingu eru peningar sem verða til vegna verðbólgu, sem aftur á móti býr til meiri verðbólgu og áfram heldur þessi hringrás þangað til að peninga kerfið fer yfir þolmörk og efnahagskreppa verður með einhverjum hætti. Yfirleitt er þetta í forminu miklu atvinnuleysi á Íslandi, mikilli verðbólgu og mjög háum stýrivöxtum og efnahagskreppu í einhverju formi til lengri tíma á Íslandi. Á Íslandi hefur fólk verið hvatt til þess að taka verðtryggð lán, á þeim grundvelli að þau séu hagstæðari. Ekkert er lengra frá sannleikanum. Verðtryggð lán eru og verða alltaf óhagstæðustu lán sem fólk tekur. Þetta eru einnig óhagstæðustu lán sem fyrirtæki, sveitarfélög og aðrir aðilar taka. Verðtryggð lán á Íslandi eru ekki bara húsnæðislán, heldur einnig námslán, framkvæmdalán og fleira og fleira. Listinn er ekki eins langur í dag og hann var áður fyrr en hann er mjög langur í dag. Þeir sem hafa verið að hvetja fólk til þess að taka verðtryggð lán eru meðal annars Seðlabankastjóri Íslands, eins og ég nefni hérna fyrst í greininni. Á grundvelli þess að slík lán væru hagstæð. Þegar þessi orð voru látin falla af yfirvaldi á Íslandi. Þá gerðist það sem mátti reikna með. Fólk skipti yfir í verðtryggð lán og þá hófst hringekjan með verðbólguna og hækkandi stýrivexti á ný og hefur ekki stöðvast síðan þá. Þar sem fólk er ennþá að taka verðtryggð húsnæðislán og önnur slík lán. Þessi lán framleiða síðan fjármagn sem á ekki að vera í hagkerfinu (fjármagn sem er ekki tengt framleiðni í hagkerfinu). Verðtryggð lán eru hluti af hagkerfinu sem slík. Ætluð fyrir fjárfesta sem ætla sér að taka mikla áhættu í einhverju á mjög skömmum tíma. Slík lán eru ekki hugsuð til 20 til 40 ára eða hvaða árafjöldi sem er notaður í dag þegar slík lán eru veitt. Verðtryggð lán voru aldrei hugsuð í hagkerfinu sem lán sem ætti að veita til almennings. Vegna þess að slíkt getur aldrei öðruvísi en mjög illa fyrir viðkomandi hagkerfi. Það er einnig stórt vandamál á Íslandi að það er ekki bara lán sem eru verðtryggð. Húsaleiga á Íslandi er einnig verðtryggð og það er fleira sem er verðtryggt en með óbeinum hætti. Það hefur eitthvað tekist að draga úr þessu vandamáli með lagabreytingum en húsaleigan er ennþá verðtryggð á húsaleigu sem er lengri en 12 mánuðir. Það þýðir að húsaleiga hjá fólki hækkar stöðugt, hvort sem það er mánaðarlega eða á þriggja mánaða fresti og það hefur enginn með réttu efni á að leigja húsnæði sem hækkar stöðugt. Þessi hækkun eykur einnig verðbólgu og framleiðir fjármagn inn í hagkerfið þar sem það ætti ekki að vera. Þetta er aðeins öðruvísi en með verðtryggð lán en virkar mjög svipað, nema að því að leigjendur eru að horfa upp á húsaleigan tekur stöðugt meira af tekjunum þeirra. Þetta er mjög svipað og með húsnæðislánin sem hækka stöðugt, þar sem hækkun húsnæðislána tekur stöðugt meira af tekjum þeirra sem eru með verðtryggð lán. Það sem þarf að gerast á Íslandi er að stjórnvöld þurfa að banna verðtryggð lán með öllu með lagasetningu. Á sama tíma þarf einnig að banna verðtryggða húsaleigu og annað slíkt með öllu. Það mun lækka verðbólgu og draga úr óstöðugleika í íslensku hagkerfi. Íslendingar ættu einnig að finna sér nýjan Seðlabankastjóra við fyrsta tækifæri. Höfundur er búsettur í Danmörku. Hefur ekki efni á verðtryggði húsaleigu á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Frímann Jónsson Mest lesið Óútskýrð veikindi skipstjóra um nótt Kristinn Hrafnsson Skoðun Halldór 09.05.2026 Halldór Excel sér ekki barnið sem bíður Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Reykjavík töluð niður svo hægt sé að selja eignir hennar Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Lítil skítseiði Hrafn Jónsson Skoðun Er engin fréttamennska í þessu landi lengur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Um þagnir, vald og rammana sem við smíðum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar Skoðun Hvert stefnir menningin? Elsa María Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Seltjarnarnes þarf uppbyggingu sem skilar árangri Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar Skoðun Bætum þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ Ragnheiður Hergeirsdóttir skrifar Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland verði hluti af evrópsku sambandsríki Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Samgöngur fyrir börn Stein Olav Romslo skrifar Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erindi Miðflokksins er mikilvægt Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Garðabær: Menning, umhverfi og lífsgæði fyrir okkur öll Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Það er og verður gott að búa í Kópavogi Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Sterk velferð fyrir fólk í Kópavogi Björg Baldursdóttir skrifar Skoðun Íþróttahúsið við Strandgötu - hjarta öflugs íþróttastarfs Erla Björg Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Aldursvæn samfélög – verkefni nýrra sveitarstjórna Halldór S. Guðmundsson skrifar Skoðun Það er ekkert „við og þið“, aðeins eitt samfélag Viðar Marinósson skrifar Skoðun Athugasemdir við villandi samanburði Viðskiptaráðs um sorphirðu Guðmundur B. Friðriksson skrifar Skoðun Óútskýrð veikindi skipstjóra um nótt Kristinn Hrafnsson skrifar Skoðun Keldnaland steinsteypt excelskjal Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík getur verið þorpið sem við þurfum öll á að halda Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Hleypum fötluðum börnum inn á völlinn! Stefán Pálsson skrifar Skoðun Excel sér ekki barnið sem bíður Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Sterkur rekstur og skýr sýn Helgi Kjartansson,Stefanía Hákonardóttir skrifar Skoðun Árangur í rekstri á að skila sér til heimila Elísabet Ingunn Einarsdóttir skrifar Skoðun Húsnæði er mannréttindi – Húsnæði fyrst. Enginn á heima á götunni Harpa HIldiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð: Hvað er opinn leikskóli? Sigurrós Elddís Huldudóttir skrifar Skoðun „Líttu upp Jóhann Páll“ Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar
Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar
Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Íþróttahúsið við Strandgötu - hjarta öflugs íþróttastarfs Erla Björg Hafsteinsdóttir skrifar
Skoðun Athugasemdir við villandi samanburði Viðskiptaráðs um sorphirðu Guðmundur B. Friðriksson skrifar
Skoðun Húsnæði er mannréttindi – Húsnæði fyrst. Enginn á heima á götunni Harpa HIldiberg Böðvarsdóttir skrifar