Glansmynd eða staðreyndir: um loftslagsárangur Svíþjóðar Eyþór Eðvarðsson skrifar 23. mars 2026 07:31 Þessi grein er svargrein við athugasemdum Gunnars Einarssonar frá 18. mars 2026 við grein mína um loftslagsmál í Svíþjóð sem birtist fyrir skömmu. Þar dró ég fram þann árangur sem Svíþjóð hefur náð í loftslagsmálum, sem endurspeglast meðal annars í því að landið er samkvæmt Climate Change Performance Index (CCPI) jafnan í hópi þeirra ríkja sem standa sig best. Gunnar telur að þessi mynd sé glansmynd og vísar í „græna sænska skrímslið“ sem víti til varnaðar. Grein hans er hins vegar ágæt áminning um hversu auðvelt er að villa umræðu með einstökum sögum, YouTube-myndböndum og tilfinningum en sleppa því sem skiptir mestu máli, vísindagögnum og heildarsýn. Byrjum á grunninum Það kemur ekki á óvart að þeir sem efast um vísindalegan grunn loftslagsmála horfi öðrum augum á þær breytingar sem orðið hafa í Svíþjóð og leggi frekar áherslu á að finna þeim annmarka. Umbreyting hagkerfa er hvorki einföld né átakalaus. Svíþjóð er nú í slíkri umbreytingu með það markmið að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og gera hagkerfið sjálfbærara. Til að leggja mat á árangurinn verður hins vegar að horfa á heildarmyndina en ekki einstaka sögur. Einstök dæmi segja ekki alla söguna Málflutningur Gunnars byggir að stórum hluta á einstökum dæmum, gagnrýnum röddum, YouTube-myndböndum og fyrirtækjum sem hafa lent í vandræðum. Slík nálgun er ekki heildstæð greining heldur val á dæmum sem styðja skoðun höfundar og fyrirframgefna niðurstöðu. Allar stórar kerfisbreytingar innihalda bæði verkefni sem mistakast og verkefni sem skila árangri. Ef við ættum að dæma orkuskipti út frá einstökum verkefnum sem ganga illa eða fyrirtækjum sem lenda í vandræðum þyrftum við að hafna nær allri tækniþróun mannkyns. Til að leggja raunhæft mat á árangur Svía í loftslagsmálum þarf að horfa á helstu staðreyndir sem liggja fyrir: Landið er í fremstu röð í Evrópu í loftslagsmálum samkvæmt CCPI. Landið er leiðandi í orkuskiptum, kolefnisstefnu og uppbyggingu græns iðnaðar. Losun hefur dregist saman um rúm 30% frá 1990. Raforkukerfið er nánast kolefnishlutlaust og hefur þegar laðað að grænan iðnað og hátæknifyrirtæki sem hafa einsett sér að framleiða vörur með litla sem enga losun. Svíþjóð er í fremstu röð í Evrópu í nýsköpun og hefur ítrekað skipað í efstu sætum samkvæmt European Innovation Scoreboard, Global Innovation Index og gögnum OECD. Þetta er ekki glansmynd heldur mælanlegur árangur. Svíar eru leiðandi í rafhlöðuframleiðslu og þó einstök nýsköpunarverkefni hafi lent í erfiðleikum breytir það ekki þeirri staðreynd að Svíþjóð hefur markvisst byggt upp umhverfi fyrir nýjan rafhlöðuiðnað og verið í fararbroddi í þeirri þróun í Evrópu. Það er rétt að deilur hafa skapast, meðal annars um vindorku. En á sama tíma eru einnig deilur um áframhaldandi notkun jarðefnaeldsneytis, sem veldur loftmengun, heilsutjóni, skaða á lífríkinu og hlýnun jarðar. Fullyrðingar Gunnars um að vindorka sé meginorsök hás raforkuverðs standast ekki nánari skoðun. Vindorka er í dag meðal ódýrustu orkugjafa sem völ er á. Raforkuverð ræðst af flóknu samspili margra þátta. Þegar pólitík hægir á orkuskiptum Gagnrýni Gunnars skortir mikilvægt samhengi. Eftir stjórnarskiptin í Svíþjóð árið 2022 tók við ríkisstjórn hægri flokka með stuðningi þjóðernispopúlíska flokksins Svíþjóðardemókratanna. Sá flokkur hefur ítrekað lýst andstöðu við uppbyggingu vindorku og lagt áherslu á að hægja á orkuskiptum. Stjórnarskiptin, ásamt innrás Rússa í Úkraínu, breyttu fókus stjórnvalda í Svíþjóð. Metnaður í loftslagsmálum hefur dvínað og uppbygging vindorku orðið pólitískt umdeildari. Afleiðingarnar eru sýnilegar: Kröfur um lífeldsneytisblöndun hafa verið lækkaðar með aukinni losun í kjölfarið Stór vindorkuverkefni á hafi úti hafa verið sett í bið Áherslur í ríkisfjármálum hafa færst frá loftslagsaðgerðum Þetta var skýr stefnubreyting. Þegar stjórnvöld senda óljós eða neikvæð skilaboð dregur úr vilja fjárfesta, verkefni tefjast og framfarir hægja á sér. Horfum til framtíðar og sýnum ábyrgð Heimurinn stendur frammi fyrir loftslagskrísu, hvort sem við kjósum að horfast í augu við hana eða ekki. Við höfum takmarkaðan tíma til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og koma í veg fyrir þær hamfarir sem annars verða. Þetta er stærsta viðfangsefni okkar tíma. Svíar hafa tekið þessari áskorun alvarlega og náð verulegum árangri. Það hvort þeir hafi gert eitthvað umdeilt í orkuskiptunum er ekki aðalatriðið. Það þarf framsýni og hugrekki til að ná fram réttum breytingum því það verða alltaf raddir sem sjá bara vandamál, jafnvel í lausnunum. Greinarhöfundur er meðlimur í loftslagshópnum París 1,5, sem beitir sér fyrir því að Ísland leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyþór Eðvarðsson Loftslagsmál Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar